15.03.1928
Neðri deild: 48. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2224 í B-deild Alþingistíðinda. (1146)
30. mál, tilbúinn áburður
Einar Jónsson:
Jeg hefi fáu að bæta við þessar umræður, enda hefi jeg áður gert grein fyrir skoðunum mínum. Ýmsir þeirra, sem talað hafa á eftir mjer, t. d. hv. 1. þm. Reykv., hafa tekið í sama streng og jeg og endurtekið mín orð á köflum, án þess þó að láta mín getið. Skiftir það mig engu að vísu, er jeg sje, að málið fær góðan byr.
Hjer var þó flutt ein ræða fyrir skömmu, sem jeg felli mig ekki við og get ekki stilt mig um að minnast á, en það er ræða hv. þm. Barð. Sú ræða var svo óljós og undarlega leiðinleg í alla staði, að mjer var ómögulegt að skilja, hvað hv. þm. var að fara. Að vísu heyrði jeg ekki sumt af því, sem hann sagði, en þar held jeg, að mjer sje bættur skaði, ef það hefir verið álíka og það, sem jeg heyrði. — Hann var, þessi háttv. þm., að álasa hinum og öðrum mönnum fyrir ýmislegt; en það þykir mjer furðulegt, ef nokkrum hefir tekist að skilja þær ásakanir, því að jeg gat ekki betur sjeð en að alt, sem hann vildi segja, bæri öfugt að og endirinn yrði sá, að hann segði hreint ekki neitt. Ýmist sagði hann, að bændur væru betlarar og aumingjar, ef þeir þægju það, sem þeim væri boðið í frv., eða hann barmaði sjer yfir því, að það kæmi þeim ekki að liði. Jeg gat ekki með nokkru móti komið því inn í mitt höfuð, hvern þremilinn hann meinti með þessu. Svo var hann að tala um kjarkleysi bænda og kveifarskap. En jeg skal ennþá undirstrika það, svo að hann sjálfur heyri og öll háttv. þingdeild, að jeg skildi ekki eitt einasta orð í allri þessari mælgi hv. þm.
Helst vildi jeg leggja það til, ef samþykki hlutaðeigenda fengist, að till. nefndarinnar og háttv. 1. þm. N.-M. kæmu ekki til atkvæða nú, en yrðu geymdar til 3. umr. (LH: Jeg er búinn að óska þess. — HStef: Og jeg er því samþykkur). Þá styð jeg till. þessara hv. þm. Og þar sem búið er að óska þess, að brtt. komi ekki til atkv., hefi jeg ekki meira að segja. Þó vil jeg enn leggja áherslu á, að jeg tel sjálfsagt að hlynna helst að þeim, sem erfiðast eiga með aðdrættina. — Þetta tók jeg skýrt fram í fyrri ræðu minni.
Get jeg svo lokið máli mínu, en verð þó að lokum að minnast aftur á hv. þm. Barð.; svo hugstæð er mjer ræða hans. Jeg verð að benda honum á það, þó að hann sje stundum nokkuð viðkvæmur — og frekur —, að af ræðu hans getur ómögulega neitt gott hafa hlotist, því að það, sem jeg heyrði af henni, skildi jeg ekki; og mjer vitanlega enginn hv. þdm., og jeg held helst, að hann hafi ekki skilið hana sjálfur. Mjer er því næst að halda, að hann hafi flutt hana án þess að meina það, sem hann sagði, enda er alment talið, að slíkt muni hafa hent þennan hv. þm. oftar en í dag.