23.02.1928
Efri deild: 30. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2254 í B-deild Alþingistíðinda. (1174)

22. mál, menningarsjóður

Erlingur Friðjónsson:

Það er auðvelt og ljett verk að vera frsm. þessa máls í forföllum hins rjetta. Eins og nál. á þskj. 256 ber með sjer, hefir nefndin orðið sammála um, að frv. nái fram að ganga með örlitlum breytingum. Að vísu hefir einn nefndarmaður, hv. 3. landsk., skrifað undir með fyrirvara, sem nær til frv. yfir höfuð, og mun hann gera grein fyrir afstöðu sinni.

Að öðru leyti er lítið um brtt. nefndarinnar að segja.

Fyrsta brtt. er aðeins orðabreyting, 3. málsl. 1. gr. frv. orðaður um, en efni hans er á engan hátt raskað.

Önnur brtt. felur í sjer örlitla tímabreytingu, að í staðinn fyrir „janúar“ komi: apríl. Þar er aðeins gert ráð fyrir, að tekjur sjóðsins verði ekki komnar í handraðann svo snemma, að hægt verði að skifta þeim fyr en í aprílmánuði í fyrsta lagi.

Um þriðju brtt. sje jeg ekki ástæðu til að orðlengja frekar. Þar er ekki um annað að ræða en lítilsháttar orðabreytingar.

Efni frv. og stefna þess er óhögguð, eins og jeg hefi tekið fram, og hirði því ekki að svo stöddu að hafa um það fleiri orð.