27.03.1928
Neðri deild: 58. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2263 í B-deild Alþingistíðinda. (1198)
140. mál, fjáraukalög 1927
Frsm. (Ingólfur Bjarnarson):
Fjvn. hefir gaumgæfilega athugað þetta frv., hina ýmsu útgjaldaliði, heimildir þær, sem liggja fyrir um ýmsar þessar greiðslur, og venjur þær, sem skapast hafa á undanförnum þingum um samþykt svipaðra útgjalda. Og niðurstaðan er sú, að nefndin leggur til, að frv. verði samþ.
Útgjöldin eru samtals eftir frv. kr. 156457,98, en upphæð fjáraukalaga fyrir árið 1926 nam 280 þús. kr. Er heildarupphæð þessa frv. þannig allmiklu lægri en árið á undan.
Jeg sje enga ástæðu til að fara út í hina ýmsu liði, því að háttv. þm. hafa að sjálfsögðu kynt sjer frumvarpið og ástæður þær, sem stjórnin færir Frsm. En þó vildi jeg minnast á nokkra. Það er þá fyrst 3. liður 5. gr., sem hefir brenglast í frv. Þar stendur, að veittar skuli kr. 4665,76 til byggingar íbúðarhúss í Tröllatungu, en á að vera til byggingar á prestssetrinu í Kollafjarðarnesi, svo sem glögt kemur fram í aths. við frv. Taldi nefndin mega leiðrjetta þetta í prentun. Nefndin fann ástæðu til að benda á misræmi það, sem kemur fram í fjárveitingum til bygginga á prestssetrum, þar sem til sumra eru veittar 20 þús. kr. og enda minna, en aftur til annara upp að 30 þús. kr. og yfir það. T. d. eru þegar veittar 33 þús. kr. til byggingarinnar á Bergþórshvoli, og þó ekki alt greitt, og til byggingarinnar á Saurbæ í Eyjafirði mun verða greitt 25 þús. kr. Nefndin vill leggja áherslu á, að þessum byggingum sje hagsýnilega stjórnað. Það er ekki gott um það að segja, í hverju þessi mismunur liggur, en sennilega kemur hann af ónógu eftirliti og sömuleiðis af því, að húsin eru misjafnlega íburðarmikil.
Út af 6. lið 5. gr. vil jeg taka það fram, að bygging daufdumbraskólans kostar fullar 60 þús. kr., en eins og margir munu minnast, var gert ráð fyrir, að lóðir ríkissjóðs þar í kring verði seldar, og í athugasemdum stj. er þess getið, að lóðirnar sjeu þegar seldar og fjeð muni koma inn á næstu árum, en það mun nema, að því er mjer skilst, eins miklu og byggingin kostar.
Þá er það 3. liður 6. gr., um fornmenjarannsóknir á Bergþórshvoli. Til þeirra eru veittar 4000 kr. Nefndinni þótti þetta allhátt, en það er sýnilegt, að ráð er gert fyrir meiri kostnaði, því að í athugasemdum stj. stendur, að kostnaðurinn við rannsóknirnar „hafi ekki orðið meiri árið 1927“, og sýnist það benda til þess, að kostnaðinum sje ekki enn lokið. Nefndinni fanst það óviðurkvæmilegt að láta starfa að þessum grefti án heimildar í fjárlögum. Og þar sem einn liður þeirra fjallar um kostnað við fornmenjarannsóknir, fanst nefndinni sjálfsagt, að tekin væri upp í fjárl. veiting í þessu skyni, ef þingið á annað borð vildi halda þessum rannsóknum þarna áFrsm. Hefi jeg svo ekki fleira að athuga.