04.04.1928
Neðri deild: 65. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2341 í B-deild Alþingistíðinda. (1252)
23. mál, friðun Þingvalla
Magnús Torfason:
Jeg held, að það sje á ókunnugleika bygt, að þessi brtt. mín, að því er snertir að friða landið strax, fari á nokkurn hátt í bága við það, sem þarf eða á að gera. Það kemur vitanlega ekki til mála annað en að þessir bændur, sem á svæðinu búa, sitji þarna þetta ár út, og er þá komið að fardögum 1929. — Þá kemur fardagaárið 1929–'30, en jeg býst ekki við, að þessir bændur verði látnir hætta ábúð um áramót. Yrðu þeir því að nota beitina til hausts 1929. Það er því ekki of snemt, að lög þessi gangi í gildi strax, enda kemur ekki til mála annað en gefa hæfilegan frest. Fyrir því er líka gert ráð í 3. gr. frv. Og sú grein sýnir, að ekki er ætlast til þess, að girt verði á einu augnabliki. Framkvæmdin getur aldrei orðið sama dag og lögin öðlast gildi. Við slík lög, sem þarfnast undirbúnings og framkvæmda, er ekki skilið annað en það, að þau komist svo fljótt í framkvæmd og sæmilegt eða hentugt má teljast. Annað hefir heldur ekki verið skilið við þetta af hálfu okkar tillögumanna, og rjeðum við það með okkur með gerhygli og af góðum hug að leggja þetta til málsins. Jeg hefi ekki minst á hina smærri liði till. minnar. Það er sjerstaklega 3. liðurinn við 3. gr. Í þeirri gr. eins og hún er í frv. er sú veila, að talað er um aukning fjallskila. En nú má það öllum ljóst vera, að fjallskilin aukast ekkert við það, þótt búskapur verði lagður niður á þessum býlum. Þau verða vitanlega hin sömu eftir sem áður og rýrna hvorki nje aukast við það. Jeg játa, að þegar jeg bjó til till. mína, þá var jeg ekki vel ánægður með orðið rýrnun. En það orð var miðað við þá þegnskylduvinnu, sem hreppurinn hefir yfir að ráða til að framkvæma fjallskilin. Það var því engir. hugsunarvilla. Síðar hugsaðist mjer orðið „íþyngja“, og þótti það betra, því það þyngjast fjallskil á þeim bændum, sem eftir verða, og þarf því að bæta þeim það upp.