04.04.1928
Neðri deild: 65. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2350 í B-deild Alþingistíðinda. (1259)

23. mál, friðun Þingvalla

Hákon Kristófersson:

Jeg vil aðeins beina örfáum orðum til hæstv. ráðh. viðvíkjandi þeim bótum, sem viðkomandi bændur eiga að fá fyrir missi á afnotarjettinum. — Í 3. gr. stendur sem sje, að greiða eigi ábúendum fyrir afnotarjettinn, en jeg lít svo á, að bæta þurfi mönnum þessum miklu meira, ef stjórnin vill skilja sæmilega við þá. Hv. 2. þm. Árn. gat þess rjettilega, að ef lög þessi yrðu samþ., hlytu bændur að skera niður bústofn sinn á komandi hausti. Má búast við því, að þeir verði þar fyrir ekki alllitlum skaða, og álít jeg, að stjórninni beri að bæta þeim allan þann skaða, er þeir kunna að verða fyrir af þessum orsökum. Þar á meðal ætti stjórnin eða nefndin að kaupa húsin á jörðum þeim, sem leggjast í eyði, við því verði, er þau verða metin af óvilhöllum mönnum.

Annað var það ekki, sem jeg vildi benda á, en að nauðsyn beri til þess, að stjórnin geri svo vel við þessa menn, að þeir bíði ekkert tjón af samþykt þessara laga.