04.04.1928
Neðri deild: 65. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2351 í B-deild Alþingistíðinda. (1260)
23. mál, friðun Þingvalla
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Það er mjög auðvelt að svara hv. þm. Barð., enda fer hann alveg með rjett mál. Það hefir altaf verið svo til ætlast, að ef ekki næðist samkomulag milli nefndarinnar og bænda um fyrirkomulagsbreytingu á búskap þeirra, væri ekki um annað að gera en að greiða þeim þær bætur, er þeim verða metnar að dómi tilkvaddra manna. Hjá þessu verður alls ekki komist, og þarf hv. þm. því ekki að vera hræddur um, að þessir bændur muni bera skarðan hlut frá borði.