08.03.1928
Neðri deild: 42. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2355 í B-deild Alþingistíðinda. (1270)

141. mál, bankavaxtabréf

Fjmrh. (Magnús Kristjánsson):

Eins og athugasemdirnar við þetta frv. bera með sjer, þá er útlit fyrir, að þeim síðasta af starfandi flokkum bankavaxtabrjefanna, sem lagaheimild er fyrir, verði lokið á miðju þessu ári. Verður þá að fullu notað það fje, sem stjórninni var veitt heimild til að útvega til veðdeildarinnar. Bankaráð Landsbankans hefir því farið fram á, að stofnaðir yrðu nýir flokkar. Þetta frv. er að mestu leyti í sama formi og fyrri lög, sem sett hafa verið um veðdeildina, að því fráskildu, að í það er ekki tekin heimild til að taka lán til að kaupa bankavaxtabrjefin. Fyrir mitt leyti held jeg, að gengið hafi verið nokkuð langt í því að taka lán til þess. Reynslan hefir sýnt, að það er einungis lítill hluti brjefanna, sem hefir selst, á móts við það, sem ríkið hefir keypt. Sje jeg ekki, að hægt sje að halda áfram á þeirri braut. Mikill hluti þessa fjár hefir og farið til nýbygginga í kaupstöðum landsins og kauptúnum. Það hljóta áð vera takmörk fyrir, hvað langt á að fara í því að draga landslýðinn til sjávarþorpanna. Er oft svikull sjávaraflinn.

Jeg geri ráð fyrir, að frv. verði vísað til fjhn. að umr. lokinni, og geri það að tillögu minni.