08.03.1928
Neðri deild: 42. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2360 í B-deild Alþingistíðinda. (1275)
141. mál, bankavaxtabréf
Jón Auðunn Jónsson:
Það er ekki nema eðlilegt, að mikið hafi verið lánað úr veðdeildinni, því að svo mátti heita, að fasteignaveðslán væru ófáanleg um tveggja ára skeið áður en útlánin byrjuðu. Menn urðu því að bíða með að taka lán og fyrstu lánin úr 5. og 6, flokki voru mikið tekin út á hús og aðrar umbætur frá undanförnum árum.
Veðbankinn mun lenda alveg á sama þröskuldinum og veðdeildin, þ. e. markaðsleysi fyrir skuldabrjefin. Þótt hann kæmist upp, þarf að taka lán í útlöndum til þess að veðlánastarfsemin komi að meiri og fyllri notum. Það vakir ekki fyrir okkur, að því meira, sem bygt er við sjávarsíðuna, því betra. Við viljum ekki, að bygt sje umfram þarfir. En eins og nú stendur, er víðast mikið húsnæðisleysi. Í Vestmannaeyjum var t. d. feikna mikið húsnæðisleysi á síðastliðnu ári og í Reykjavík er, eins og kunnugt er, húsnæðisekla stöðug ár frá ári, þrátt fyrir miklar framkvæmdir í byggingum.