24.03.1928
Neðri deild: 56. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2374 í B-deild Alþingistíðinda. (1284)
141. mál, bankavaxtabréf
Halldór Stefánsson:
Hv. frsm. gat þess í ræðu sinni, að fjhn. hefði fengið upplýsingar um þau veðdeildarlán, sem veitt hafa verið undanfarið, og að eftir þeirri skýrslu, sem bankastjórnin gaf, þá hefði þeim lánum verið hagað þannig, að bændur landsins hefðu átt forgangsrjett að þeim, á þann hátt, að þeir hefðu verið látnir sitja í fyrirrúmi um afgreiðslu lánanna. Það má nú vera, að hv. frsm. hafi fengið þessar upplýsingar hjá bankastjórninni, en fyrir nefndinni leit þetta nokkuð öðruvísi út, eftir þeim upplýsingum, sem fyrir hendi lágu. Þó lán þau, sem til sveita hafa gengið, sjeu miklu minni en til kaupstaðanna, þá getur það verið af eðlilegum ástæðum, sem liggur í aðstöðumun þeim, sem þeir eiga við að búa. Þótt líkt væri um lánbeiðnir úr sveitum og kaupstöðum, þá eru bændurnir, vegna fjarlægðar og annarar aðstöðu sinnar, oft útilokaðir frá að ná í veðdeildarlán. Bændur eiga verri kost á að fá bráðabirgðavíxla upp á loforð um lán síðar meir heldur en menn hjer eiga o. s. frv.
Jeg skal þá víkja að því, hverjar upplýsingar lágu fyrir fjárhagsnefnd um þetta efni og hvernig þetta lítur út samkvæmt þeim. Þessar upplýsingar ná aðeins til 5., 6. og 7. flokks, eða þeirra flokka, sem bygðir voru á lögum nr. 26, 15. júní 1926.
Í 5. flokki er tala lána til kaupstaða og verslunarstaða alls um 360 og lánsupphæð alls kr. 2808100, en til sveita er tala lána 32 og lánsupphæð alls kr. 191900.
Með öðrum orðum, af lánsupphæðinni allri í 5. flokki hafa kaupstaðir og verslunarstaðir fengið 93,6%, en sveitirnar aðeins 6,4%.
Í 6. flokki eru veitt alls 325 lán til kaupstaða og verslunarstaða, alls að upphæð kr. 2673000, en til sveita eru veitt 71 lán, alls að upphæð kr. 327000. Í þeim flokki hafa kaupstaðir fengið 89%, en sveitir 11% af allri lánsupphæðinni.
Í 7. flokki, sem ekki er fulllánaður, eru þegar veitt 209 lán til kaupstaða og verslunarstaða, og er upphæð þeirra alls kr. 1651800, en til sveita eru veitt 59 lán, og upphæð þeirra alls kr. 218900. Í hundraðshlutföllum sama og í 6. fl., eða 89% til kaupstaða en 11% til sveita.
Um það hefir verið getið hjer, hve mikið er enn ólánað af 7. fl. og hvernig ástatt er um sölu brjefanna. En jeg vil taka það fram, til þess að gera þetta yfirlit sem fylst, að frá því hefir verið skýrt, að enn liggja fyrir 61 lán veitt, en enn ótekin, samtals að upphæð 309100 kr., þar af 31 lán til sveita, að upphæð alls kr. 90800. Óafgreiddar liggja fyrir rúmlega 300 lánbeiðnir. Allar þessar tölur eru teknar eftir skýrslu Landsbankastjórnarinnar til fjhn., er gefin var með brjefi dags. 18/2, og nær sú skýrsla til 2. febrúar þ. á.
Jeg vildi aðeins gefa þessar upplýsingar út af ummælum, sem hjer hafa fallið, sjerstaklega frá hv. 2. þm. Reykv.