27.03.1928
Neðri deild: 58. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2377 í B-deild Alþingistíðinda. (1289)

141. mál, bankavaxtabréf

Fjmrh. (Magnús Kristjánsson):

Jeg get ekkert haft á móti því, þó að þessi heimild sje sett inn í frv. Hitt er annað mál, að hún verður ekki notuð, nema brýn nauðsyn beri til. Jeg vil skjóta því til nefndarinnar, að jeg er ekki viss um, að það sje heppilegt, að þessar 3 milj. eigi að vera flokkur út af fyrir sig. Jeg held, að það sje erfitt reikningshaldsins vegna að gera þetta að sjerstökum flokki, af því jeg álít, að samtímis verði selt mikið af öðrum brjefum. Mjer finst, að 1. gr. geti staðist út af fyrir sig, og það er vafasamt, hvort það er heppilegt að hafa þessa flokkun. Ef ekki koma óyggjandi upplýsingar um það, að þetta valdi ekki óþægindum, vil jeg mælast til þess við nefndina, hvort hún geti ekki orðið við þeirri ósk að athuga þetta nánar. Jeg býst við, að hæstv. forseti sjái sjer fært að láta greiða atkvæði um þennan hluta till. út af fyrir sig.