27.03.1928
Neðri deild: 58. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2382 í B-deild Alþingistíðinda. (1298)

141. mál, bankavaxtabréf

Jón Auðunn Jónsson:

Hjer er aðeins farið fram á, að veðdeildinni sje heimilt að veita lán út á húseign utan verslunarlóðar. Jeg held, að það sje alveg sjálfsagt að gera þetta. Að veðdeildin láni með tilliti til þess, hver á húsið, er óforsvaranlegt. Veðdeildarlánið bindur eignina, en ekki manninn, sem á eignina. Dæmið, sem hv. 2. þm. G.-K. tók, á ekki við hjer. Það, sem jeg fer fram á, er aðeins það, að menn geti fengið lán, sem byggja aðeins lítið eitt fyrir utan verslunarlóðina, en geta ekki fengið vottorð um, að þeir sjeu á verslunarlóðinni, þó að þeirra húseign sje fullkomlega eins veðhæf og væri hún á verslunarlóðinni.

Þess ber einnig að gæta, að í reglugerðinni, sem sett verður, má taka upp skilyrði um það, að út á húseign utan verslunarlóðarinnar skuli aðeins lánað, þegar veðdeildin hefir fulla vissu um, að veðið sje jafngott og þó að húsið væri á verslunarlóðinni. Jeg tel það alveg ótækt, að fjöldi manna, sem kannske ekki þekkir verslunarlóðatakmörkin, fái ekki lán út á hús sín, þó að þau sjeu fullkomlega veðhæf.