03.03.1928
Neðri deild: 38. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 698 í B-deild Alþingistíðinda. (130)
1. mál, fjárlög 1929
Magnús Torfason:
Jeg hafði nú hugsað mjer að taka ekki til máls núna, en forlögin hafa hagað því svo, að jeg kemst ekki hjá því. En úr því að jeg stend upp, þá er það ein brtt., sem jeg vildi mæla á móti, enda þótt jeg sje ekki vanur að spilla fyrir þeim till. annara, sem til bóta mættu horfa. Þessi brtt. er sú 22. á þskj. 353, og er þess efnis, að veittar verði 3000 kr. til að rita og styðja útgáfu ítarlegrar sögu Íslands.
Jeg vil strax lýsa því yfir, að saga hefir alla tíð verið mitt yndi og eftirlæti, og það er ekki af því, að jeg sje í sjálfu sjer á móti þessari hugmynd, að jeg mæli á móti brtt., því jeg hefi ætíð vonast eftir því, að við fengjum góða Íslandssögu og býst við, að fáir þm. gleddust meira við það en jeg. En það fæst ekki með þessari tillögu. Sú kynslóð, sem hefir verið uppi á undan okkur, hefir aðallega haft það með höndum að draga fram frumefni og frumrit sögunnar, en það er fyrsta skilyrðið fyrir því, að við getum fengið góða sögu, að þau sjeu vel kunn. Margir okkar bestu manna hafa slitið sjer út á þessu. Menn, sem hafa verið svo ritfærir og skrifað svo skemtilega, að þeir hefðu verið kjörnir til þess að rita almenna sögu. Þessar rannsóknir hafa að mestu leyti kæft hina hlið þessa máls, og erum við ekki enn komnir af þessu stigi. Það er svo margt órannsakað ennþá og mikið af frumritum, sem ennþá eru ekki komin í ljós. Nú hefir gæfa þessa lands gefið okkur mann, sem heldur áfram starfi hinna gömlu garpa og sem vinnur svo mikið, að slíks eru fá dæmi, en þó hann verði öllum sínum kröftum til að draga fram í dagsbirtuna það, sem enn er órannsakað, mundi hann alls ekki komast yfir það. Það hefir lítið verið gert að því að rita sögu landsins í hinum ýmsu greinum, og höfum við þó haft launuð embætti til þess, en þetta held jeg stafi af því, að gögnin hafa ekki verið fyrir hendi. T. d. hefir hv. þm. haft það embætti, sem sjerstaklega er ætlað til að skrifa kirkjusögu. En eins og við vitum, hefir furðu lítið komið í ljós frá honum. Hann hefir ritað laglegar ritgerðir, en svo er það ekki meira. Nú vita allir, að hv. 1. þm. Reykv. er hinn ritfærasti maður og er mjög ljett um að rita, en samt er árangurinn ekki meiri. Tel jeg það sanna mál mitt. Jeg ætla ekki að fara að gerast neinn hæstarjettardómari í máli þessu, því að þótt jeg hafi kynt mjer nokkuð sögu landsins, tel jeg mig ekki hafa rjett á að dæma hjer um. En jeg hefi leitað álits bestu manna í þessu efni, og þeir eru mjer mjög sammála. Þess vegna geri jeg þessa athugasemd. Mjer er svo ant um, að hin almenna saga, sem hjer um ræðir, verði svo vel úr garði gerð og svo myndarlega til hennar stofnað, að jeg vildi síst, að flanað væri að útgáfu hennar. Það mál þarf fullkominn undirbúning.
Mjer er að vísu kunnugt um, að nokkrir menn hafa skrifað á pappírsblað og skorað á Alþingi að veita fje til þessa verks, en það er langt frá fullkomlega undirbúið fyrir því. Og þegar okkar besti sagnaritari hefir ekki fengist til að vera með á þessu áskorunarskjali, þá virðist mjer það einmitt benda til þess, að honum hafi ekki fundist vera nógu vel athugað, hvað ætti að gera í þessu efni.
Það minsta, sem jeg gæti hugsað mjer, væri að stofna fjelag með sjerstakri stjórn, sem beitti sjer fyrir þessu verki. — En um þetta verk á engin ritnefnd að fjalla, og enginn á að hafa neitt um það að segja, nema ef vera kynni, að hæstv. dómsmrh. ætti að gera það, þótt það verði ekki sjeð á till., að hann eigi að hafa neinn rjett til slíks. Nú vil jeg spyrja, –hvað líður vísindafjelaginu íslenska, sem stofnað var hjer á árunum og lítið hefir heyrst til, og hvers vegna tekur það ekki verk þetta sjer fyrir hendur? Þetta er þó vísindaverk og mundi auka stórum orðstír þess, ef vel tækist.
Jeg held, að till. þessi sje of fljótt fram komin; jeg held það hefði verið betra að geyma hana þangað til að minsta kosti eitt af handritunum væri fram komið, svo sýnt væri, að það væri að minsta kosti byrjað á verkinu. Nú er auðvitað gott til þess að vita, að okkar ungu sögumenn treysta sjer til slíks vandaverks, en jeg álít, að það væri þó miklu betra, ef það sæist, að byrjað væri á því. Það er eitt leiðinlegt við þetta fyrirtæki; það virðist kenna dálítils bitlingakeims af því. En það veit jeg, að hv. flm. (MJ) væri ekkert meiri andstygð en það, að annað eins verk og þetta bæri blæ bitlingasýkinnar.
Þá hafa þeir hv. þm. Borgf., hv. þm. Mýr. og hv. 2. þm. Rang. borið fram till. um endurgreiðslu á fje, sem lagt hefir verið til vega í þeirra kjördæmum. Mjer er kunnugt, að hv. þm. Borgf. hóf fyrstur máls á þessu, að minsta kosti í mín eyru, og setti það einmitt í samband við eftirgjöf á láni til endurbyggingar Flóaveginum, sem stjórnin hefir sett í fjárlagafrv. Þess vegna stend jeg upp, að þessi till., sem hv. þm. Borgf. og hv. þm. Mýr. standa að, er ekki í neinu samræmi við þá eftirgjöf, sem stjórnin hefir tekið upp í frv., og skal jeg sanna það með nokkrum orðum.
Endurbygging Flóavegarins komst fyrst í fjárlög 1919, fyrir 1920–'21. Þá voru veittar til þessa 25 þús. kr. hvort árið, og átti sýslan að greiða þá fjárhæð að þriðja hluta. Þetta kom þá ekki fram sem beiðni frá sýslunni, heldur sem hreint og beint valdboð frá Alþingi. — Jeg er ekki að segja þetta Alþingi til ámælið, en ástæðan til þessa hefir verið sú, að það hefir verið gert „fyrir óumflýjanlega nauðsyn alls Suðurlandsundirlendisins“, og kom þá þetta valdboð, er dýrtíðin stóð sem allrahæst. Þegar svo var komið, var sýnilegt, að sýslan gat ekki, fjárhags síns vegna, risið undir viðhaldi og endurbyggingu þessa vegar. Hvað var þá annað rjettara en að ljetta viðhaldinu af sýslunni þá þegar? Það var hreint og beint rökrjett afleiðing af því, að umferðin var svo afarmikil, að viðhald vegarins var miklu meira en á nokkrum öðrum vegi landsins. Ennfremur voru bifreiðarnar þá komnar til sögunnar og þurfti að byggja vegina alt öðruvísi og miklu betur en áður. Afleiðingunum af þessu átti auðvitað að taka strax 1919, en það var dregið þangað til 1924. Með öðrum orðum, þessi sýsla, svo og Rangárvallasýsla, verða að endurbyggja sína vegi sem bifreiðavegi; hinar sýslurnar allar sleppa við það. Því stendur þarna alt öðruvísi á um viðhald vegarins en um aðra vegi landsins.
Hitt er það, að þessar 160 þús. kr., sem lagðar voru fram, dugðu ekki til að byggja þennan veg, enda er því ekki lokið enn í dag. Landssjóður hefir ekki enn þann dag í dag haft orku til þess að endurbyggja þennan veg, og þetta var þó þessari sýslu ætlað að gera.
Þó tekur út yfir allan þjófabálk, að einir 5 hreppar í Árnessýslu nota þennan veg, en Rangæingar allir, svo og Skaftfellingar og Reykvíkingar nota þennan veg líka. Það náði því ekki nokkurri átt, að þetta væri gert.
Nú skal jeg skýra frá því, að það eru alt að tvö ár síðan jeg hafði hugsað mjer að bera fram till. um, að lánið yrði eftir gefið. Vissi jeg, að stóð líkt á fyrir austan ána, þótt ekki væri það að öllu leyti, því að Holtabrautina nota fáir aðrir en Rangæingar, en hinsvegar nota allir Flóaveginn, sem þurfa að fara yfir Árnessýslu austur á Rangárvelli eða lengra. Jeg sneri mjer þá til oddvitans, en hann sagði í svari sínu, að sýslunefnd væri ekki samþykk þessu, enda væri hann ekki áfram um að fá slíka eftirgjöf.
Jeg veit ekki, hvort þessi skoðun er rjett, en jeg sje, að hv. þm. Rang. eru ekki á sömu skoðun og sýsluoddvitinn, enda held jeg, að þeirra skoðun sje miklu rjettari.
En það er annað við þeirra till. að athuga eins og hún er nú; hún er ekki samþ. af sýslunefnd og þar af leiðandi ekki þær skýrslur fyrir hendi, sem þyrftu að vera í þessu máli. Hvað Flóaveginn snertir, hefir Árnessýsla borgað 4000 kr. af þeirri upphæð, sem farið er fram á að gefa eftir, svo ef þetta ætti að vera sambærilegt, þyrfti að draga eitthvað frá till. þeirra Rangæinga. En aftur á móti hvað Mýramenn og Borgfirðinga snertir, þá er þeirra till. að engu leyti sambærileg. Ef þeir eiga að fá eftirgjöf, þá eigum við Árnesingar líka að fá eftirgefnar þær kr. 21491,13, sem jeg hefi farið fram á á þskj. 374, og skal jeg nú reyna að færa þeim orðum mínum nokkurn stað.
Það er þá frá því að segja, að á árunum 1912–1923 var varið úr sýslusjóði Árnessýslu kr. 30357,26 til viðhalds Flóavegarins. Á sama tíma, eða frá 1910–1923, er varið til viðhalds Eyrarbakkabrautinni kr. 38790,00. Samtals nema þessar tvær upphæðir kr. 69147,26.
Til samræmis við till. hv. þm. Mýr. og hv. þm. Borgf. hefði jeg átt að fara fram á uppgjöf á helmingi þessarar upphæðar, en jeg hefi ekki gert það. Jeg hefi látið nægja að taka árin 1919–'23. Á þeim árum eru til viðhalds Flóavegarins veittar kr. 13887,26 og til Eyrarbakkabrautarinnar kr. 29095,00. Samtals nema þessar upphæðir kr. 42982,26, og þar af er óskað eftir, að helmingurinn verði endurgreiddur, eða kr. 21491,13.
Að jeg takmarka mig við þessi ár frá 1919–'23, er vegna þess, að þá er dýrtíðin svo langmest og verður þá að verja svo miklu fje til viðhalds á veginum, jafnframt því sem afar miklu er varið til endurbyggingar vegarins.
Af þessu vona jeg, að sjeð verði, að þessi krafa mín er miklu eðlilegri og sanngjarnari en krafa hv. þm. Borgf. og hv. þm. Mýr. — Jeg segi þetta án þess að jeg sje að mótmæla því, að þeirra krafa verði tekin til greina, en jeg vænti þess, að þeir sjái, að þeir verða að greiða þessari till. minni atkv. sitt.
En það er líka önnur ástæða til þess, að jeg tel kröfu Árnesinga svo miklu sanngjarnari, og hún er sú, að það er ekki langt frá því, að varið sje 35 þús. kr. árlega til Borgarnesbátsins. (PO: Það er flutningur á norðan- og vestanpósti). Já, við höfum nú austanpóst líka, en fáum ekki slíkan styrk. Og ætli Borgfirðingar og Mýramenn njóti ekki góðs af Borgarnesbátnum líka? Hv. þm. Borgf. má eiga það, að hann dregur fram hlut síns kjördæmis manna best, og nú fer hann fram á, að varið verði ærnu fje í að gera akfæran veg um Borgarfjörð, með ferju yfir Hvalfjörð til viðbótar. (PO: Það er til þess að auka samband Akureyrar og Reykjavíkur). Í þessum sýslum munu menn þó betur staddir með samgöngur, því að bæði Borgfirðingar og Mýramenn fá sínar nauðsynjar með mótorbátnum alveg heim að túnum sínum. Það þætti okkur Árnesingum matur, ef við gætum farið þannig að. Jeg er ekki að segja þetta til þess að spilla fyrir till. þm. Borgf. og Mýr., heldur aðeins til að sýna, að krafa Árnesinga er svo miklum mun sanngjarnari en krafa Borgfirðinga, svo og til þess að sjáist, að jeg vil ekki láta brenna við hlut Árnesinga í þessu efni.
En svo má líka líta dálítið almennari augum á þetta en hjer hefir verið gert. Eins og menn vita, er Borgarfjarðar- og Mýrasýsla vel á vegi stödd; þar er búsæld mikil og eru þar einhver blómlegustu hjeruð landsins. Fyrir það eiga þeir mikið lof skilið. En um Árnessýslu er öðru máli að gegna. Hún var áður ein af blómlegustu sýslum þessa lands, en nú er af sem áður var, því að nú er sýslan sokkin í skuldir.
Menn kunna að segja, að það sje Árnesingum sjálfum að kenna, en hvernig sem á er litið, þá eru hvergi til vinnusamari menn en í Árnessýslu, enda hafa þeir jafnan staðið framarlega í öllum framförum. Þessi óáran getur því ekki verið fólkinu að kenna, heldur utan að komandi ástæðum. Í einu orði sagt, Árnessýsla er sokkin niður í framfaraskuldir. Við þessu væri ekkert að segja, ef framfarirnar væru að sama skapi gagnlegar og til var stofnað og samsvöruðu því verði, sem fyrir þær hefir verið gefið. En það er ekki því að heilsa. Það er ekki nema eðlilegt, að þessi verkfræðingastjett í landinu sje ekki eins örugg og menn höfðu gert sjer vonir um. Hitt kann að vera, að hún sje eins og við mátti búast. Það er til gamalt máltæki, sem segir: „Ung er ný tínan“, og þessi stjett er svo ung, að það væri merkilegt, ef eitthvað færi ekki aflaga hjá henni, meðal annars af því, að hún hefir ekki aflað sjer þekkingar á íslenskum staðháttum, til þess að áætlanir hennar væru eins ábyggilegar og þyrfti að vera.
Það er alkunnugt, að í Árnessýslu hefir verið ráðist í þrjú hin stærstu mannvirki til þrifnaðar landbúnaði hjer á landi, Flóaáveituna, Skeiðaáveituna og Miklavatnsmýraráveituna. Allar þessar áveitur hafa kostað of fjár, en þó ekki orðið að því gagni, sem búist var við og til var ætlast. Mistök verkfræðinganna hafa komið þar harðar niður en nokkursstaðar annarsstaðar, svo að beinlínis má svo að orði kveða, að sýslan hafi verið notuð sem tilraunadýr í þessum efnum. Jeg ætla að lofa háttv. deild að sjá til sannindamerkis eina af máttarstoðum Miklavatnsmýrarstíflunnar, sem var fyrsta mannvirkið. Stíflan var bygð á Sandi í bókstaflegum skilningi þess orðs, en til styrktar höfðu verið reknar nokkrar máttarstoðir eins og þessi hjerna. (Hjer sýndi þm. fjöl eina, h. u. b. 3 fóta langa, 6 þuml. breiða og þumlungsþykka, oddhvassa í annan enda). Þessa spýtu hefir rekið upp úr ánni og er hún til minja um fráganginn á stíflunni. Verður manni að ætla, að eigi hafi það komið að minna haldi, er Ögmundur heitinn í Auraseli skar fresskettina í Þverá, en mannvirki, sem gerð eru af slíkum efnum. (PO: Þetta er brotinn girðingarstólpi). Þessi spýta er tekin með vottum úr ánni.
Vona jeg, að menn sjái, að það er fullkomin sanngirniskrafa, að fram nái að ganga eftirgjöf sú, er hæstv. stjórn hefir tekið upp í fjárlagafrv. á láninu til Flóavegarins, og að sú krafa sje ekki sambærileg við kröfu Mýramanna og Borgfirðinga.