08.03.1928
Efri deild: 42. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2443 í B-deild Alþingistíðinda. (1337)
34. mál, varðskip landsins
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Hv. þm. Snæf. hefir talað hjer nokkur orð til að sýna fram á, að störf þurfi að vera vel launuð til þess að þau sjeu vel unnin. Jeg hefi nú áður hrakið þetta og sýnt fram á, að störfin standa yfirleitt ekki í rjettu hlutfalli við launin. Nú hefir enginn gagnrýnt strandvarnirnar meira en þessi hv. þm., og er þá furða, að hann skuli ekki bera fram brtt. í þessa átt, ef hann telur það mikils virði fyrir málið.
Þá reyndi hv. 3. landsk. að afsaka það, að fyrverandi stj. skyldi ekki vera búin að framkvæma lögin, áður en hún fór frá. Má vera, að ókunnugleika hv. þm. sje um að kenna, að hann hafi ekki vitað, að skipin lágu hjer bæði í júlímánuði, áður en þau fóru norður, og ennfremur var hægt að senda skjölin norður. Þetta er því engin afsökun hjá hv. þm. Fyrverandi stj. var innan handar að framkvæma lögin, ef hún hefði haft hug á því. Það er líka annað, sem sýnir þetta ljóslega, og það er það, að það varð að brenna eitt eintak af Lögbirtingablaðinu, þegar stjórnarskiftin urðu, vegna þess að það var búið að prenta veitingarnar. Það var sem sagt ekki annað eftir en undirskriftirnar. Það, sem gerst hefir í málinu, síðan jeg kom í stj., er því ekki annað en það, að því, sem íhaldsstjórnin hafði slegið á frest, hefir enn verið frestað. Sama er að segja um launin; þau hafa verið hin sömu, þangað til um áramót, að laun skipstjóranna voru lækkuð. Þeir hafa frjálst val; ef þeir hefðu getað fengið betra annarsstaðar, þá hefðu þeir farið, en það hafa þeir ekki gert, og virðist það benda. á, að þeir telji þessi laun viðunandi eftir atvikum. Enda hafa þeir látið í ljós við mig, að það mundi hreint ekki svo auðhlaupið að því að fá vinnu annarsstaðar. Það út af fyrir sig að fresta framkvæmd laganna er auðvitað ekkert lögbrot. Fyrverandi stjórn ljet líða mánuði og núverandi stjórn hefir sömuleiðis látið líða mánuði án þess að framkvæma þau. Enda mundu þá lögbrotin verða æðimörg og víða pottur brotinn, ef þetta væri talið lögbrot. Það hefir til dæmis komið í ljós, að Pjetur Jónsson hafði ákveðið að fresta framkvæmd veðbankalaganna, Hannes Hafstein ljet hjá líða að bera upp fyrir konungi lög, sem Alþingi hafði samþ., og svipað mun mega segja um fleiri. Hannes Hafstein mun hafa litið svo á, að það væri þjóð sinni fyrir bestu, að þessi lög kæmu ekki til framkvæmda. Hv. 1. þm. Skagf. hefir sjálfsagt einnig talið það landinu fyrir bestu, að þessi embætti væru ekki veitt, og alveg það sama vakir fyrir mjer.
Hvað snertir samninginn við Eggert Claessen, þá hefir hann auðvitað orðið fordæmi fyrir launum annara bankastjóra, ekki einungis við Íslandsbanka., heldur einnig við Landsbankann, og þannig orðið til þess að skapa hin háu laun, sem þessum mönnum eru greidd. Hitt sje jeg ekki, að vonir fulltrúaráðsins hafi rætst svo mjög að því er hag bankans snertir. Hann getur víst tæplega talist svo góður. Á síðasta ári voru teknar út úr bankanum 6 miljónir af sparisjóðsfje, og það er altaf að ganga niður á við hvað hag hans snertir, svo það er síður en svo, að þessi háu laun hafi orðið til að auka velgengni bankans.
Jeg er alveg á gagnstæðri skoðun við hv. 3. landsk. um það, að ríkið eigi að vera nokkurskonar framfærslustofnun fyrir þá, sem einu sinni eru komnir að einhverju starfi hjá hinu opinbera.
Það er líka svo yfirleitt við atvinnuvegina, til dæmis á togurunum, að þegar menn eru orðnir slitnir og lítt færir til starfans, þá eru þeir settir í land. Aðstaða einstaklinganna er nú ekki tryggari en þetta við þennan atvinnuveg, þrátt fyrir það, að bankarnir hafa lánað langmestan hluta af sínu veltufje til hans og ríkisvaldið þannig ekki trygt neinn atvinnuveg eins og þennan.
Að því er snertir mannaskiftin í hagstofunni, þá er það ósköp auðskilið mál, hvernig í því liggur. Stjórnin vissi, að verið var að leggja niður landsverslun, og stóð þá vel á að ráðstafa þessu. Það verður heldur ekki sjeð, að fyrverandi stjórn hafi verið neitt ófús á að losna við þennan „sósíalista“ og fá skoðanabróður sinn í staðinn, enda ljet hún aðstoðarmanninn vera áfram með fullum launum.