03.03.1928
Neðri deild: 38. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í B-deild Alþingistíðinda. (134)

1. mál, fjárlög 1929

Hjeðinn Valdimarsson:

Jeg á litla brtt. við 14. gr. B. XVIII. 2. um það, að laun Ólafs Pálssonar sundkennara hækki úr 1500 krónum í 3 þús. Styrkur til þessarar sundkenslu er bundinn því skilyrði í fjárlögum, að kenslan fari fram tvo mánuði að vorinu og einn að haustinu og að lærisveinar ríkisskólanna og skóla fyrir unglinga og fullorðna, sem styrktir eru af ríkisfje, njóti kenslunnar ókeypis. Kenslan stendur nú alt árið, og eru það tveir menn, sem hafa hana á hendi, synir sundgarpsins mikla, Páls Erlingssonar, þeir Ólafur og Jón. Þeir eru um það bil hálfþrítugir báðir og hafa um langan tíma stundað þessa kenslu fyrir mjög lítið kaup. Þeir hafa á sumrin byrjað kl. 7 á morgnana og skiftst á þangað til kl. 11 á kvöldin, en verið þarna myrkranna á milli á veturna, og hafa því auðsjáanlega ekki getað stundað annað starf en þetta.

Bærinn hefir lagt nokkurt fje til þessarar sundkenslu og nú á síðustu fjárhagsáætlun var tillagið hækkað upp í 3600 kr. Þessi till. mín er um það, að ríkið hækki tilsvarandi tillag sitt til sundkenslunnar úr 1500 kr. upp í 3000; þá mundu árslaun hvors þessara manna verða 3300 kr. Er ekki hægt að kalla það mikil árslaun hjer í Reykjavík fyrir sjerfróða menn, eins og sundkennarar verða að vera. Þess skal getið, að annar þessara bræðra fór nýlega til útlanda til þess að kynna sjer nánar sundkenslu, og var mjög vel látið af honum þar, sem hann kom; enda er nokkurnveginn víst, að þeir kunna allar þær sundgreinir, sem til eru.

Til dæmis um það, hve mikið hjer sje um sundkenslu í sundlaugunum, ætla jeg að taka fram, eftir þeim upplýsingum, sem jeg hefi fengið, að þar eru rúmir 200 sundnemendur á hverju ári úr ríkisskólunum einum; úr mentaskó]anum 80–90, sjómannaskólanum 50–60, úr kennaraskólanum um 20, og samvinnuskólanum, sem líka nýtur ríkisstyrks, 30–40. Þar að auki allmargir úr verslunarskólanum, sem einnig nýtur ríkisstyrks. Allir þessir nemendur fá ókeypis kenslu. Auk þess er kent um 200 karlmönnum og kvenmönnum öðrum og 100 börnum, svo að fullnuma verða á ári hverju fyrir tilstuðlan þessara sundkennara um 500 manns. Af þessum fjölda eru minst 100 manns utanbæjarmenn, sem læra sund meðan þeir dvelja hjer um stundarsakir. Þeir, sem eru ekki í ríkisskólum, eiga að vísu að borga 4–5 kr. fyrir kenslu, en það gjald gefur sama sem engar tekjur til þessara manna. Og jeg hygg, að þessar tölur, sem jeg hefi sýnt, sanni nægilega, að það verk, sem á þessum sundkennurum hvílir, er mikið, og væri ekki ofborgað þótt ríkissjóðsstyrkur hækkaði upp í 3000 kr. Til dæmis um aðsóknina að laugunum má geta þess, að í sumar sóttu hana daglega um 300–400 manns. Kenslan gæti raunar verið ennþá meiri en hún er nú, því að rúmið er nokkuð takmarkað. Þegar sundhöllin kemur upp, mun hægt að kenna enn fleirum. En mjer fyndist það heppilegt, að á þessu sama þingi, sem ákvörðun er tekin um að koma upp sundhöll, þá væri rjettur hlutur þessara manna. En það hefir legið við — og liggur enn við — að þeir fari af landi burt, ef þeir fá ekki þau laun, að þeir geti á þeim lifað, einhleypir og á besta aldri.