11.04.1928
Neðri deild: 68. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2487 í B-deild Alþingistíðinda. (1365)
34. mál, varðskip landsins
Frsm. 3. minni hl. (Hákon Kristófersson):
* Eins og sjá má á þskj. 724, er jeg meðflm. að nokkrum brtt., ásamt hv. þm. Vestm. og hv. þm. N.-Ísf. Það er alveg rjett hjá hæstv. dómsmrh., að brtt. þessar eru allar til hækkunar, og út á það tel jeg ekkert hægt að setja, nema færa megi rök fyrir því, að þær sjeu ósanngjarnar. En það fæ jeg ekki sjeð, og vil jeg því til sönnunar skírskota til þess, sem jeg hefi áður sagt um þetta efni. Ef hæstv. ráðh. finst hjer vera að ófyrirsynju farið ofan í ríkissjóðinn, þá má hann sjálfum sjer um kenna, því að till. þessar hefðu ekki komið fram, ef hann hefði farið eftir gildandi lögum um þetta efni, í stað þess að troða yfir þau. Jeg fæ alls ekki sjeð, að það sje neitt skökk stefna, þó að lagt sje til að hækka laun einstakra manna, sem hægt er að sanna, að hafi of lítil laun, samanborið við aðra hliðstæða sýslunarmenn, og jeg verð að segja það, að mjer finst ekki sitja á hæstv. dómsmrh. að vera að finna að því. Hann hefir a. m. k. ekki verið svo varkár með að bæta starfsmönnum á ríkissjóðinn, sem bæði jeg og aðrir álíta með öllu óþarfa.
Þá talaði hæstv. ráðh. um það, að á það bæri að líta, að þessi störf, sem hjer er um að ræða, væru geðfeldari en önnur sjómannastörf. En þetta verð jeg að draga í efa; a. m. k. munu skoðanir manna vera mjög skiftar um, hvort svo sje.
Þá gat hæstv. ráðh. þess, sem hann hefir margtekið fram áður, að hann hafi sniðið laun þessara starfsmanna við laun annara starfsmanna í trúnaðarstöðum þjóðfjelagsins. Þetta skal jeg ekkert vjefengja, en það hefir aldrei verið hrakið, að þessum embættum, sem hann segist hafa miðað skipstjóralaunin við, fylgi svo og svo miklar aukatekjur. Þá virðist mjer hæstv. ráðh. ekki hafa tekið tillit til þess sem skyldi, að samfara því, sem þessar stöður eru mjög ábyrgðarmiklar, fylgir þeim líka mikil hætta, sem ekki fylgir embættum í landi.
Þá furðaði mig á því, að hæstv. ráðherra skyldi koma með þá ástæðu gegn þessari launahækkun, að altaf væri hægt að fá nóga menn í stöðurnar. Jeg er alls ekki að mótmæla því, að hægt muni vera að fá nóga menn í þessi embætti, en jeg lít alt öðruvísi á þetta atriði en hæstv. ráðh. Jeg tel nefnil. hagkvæmast fyrir þjóðfjelagið að njóta sem lengst krafta þeirra manna, sem vel og trúlega leysa starf sitt af hendi, án tillits til þess, þó að hægt kunni að vera að fá einhverja aðra, kannske miður hæfa, fyrir eitthvað lægri laun.
Það er sömuleiðis rjett hjá hæstv. ráðh., að laun þessara manna eru hærri en hjá ýmsum öðrum, sem stundað hafa 12 ára nám. En eru ekki hliðstæð laun á togurum og mörgum öðrum skipum hærri en þessara svo kölluðu lærðu manna? Jeg verð því að slá föstu, að laun þessara manna er ekki hægt að bera saman, því að það verður að miða við þá stjett, sem þessir menn heyra til.
Jeg er heldur ekki hræddur við þann ugg, sem virtist vera í hæstv. dómsmrh. yfir því að hækka laun varðskipstjóranna, að í það atriði mundi vitnað síðar, þegar væntanleg endurskoðun launalaganna færi fram. Jeg er ekki trúaður á það, enda virtist ekkert slíkt vaka fyrir þeim hv. þm., sem guldu því jákvæði að hækka risnufje forsrh. úr 4 þús. kr. upp í 8 þús. kr. á ári. (Dómsmrh. JJ: En hvað hefir Sendiherrann í Kaupmannahöfn? Hann hefir 20 þús. kr. í risnufje, sem Íhaldsflokkurinn hefir samþ.). Jeg var ekki að telja eftir risnufje forsrh. eða segja, að það væri of hátt, heldur átti jeg við, að hækkun sú, er gerð var á þeirri upphæð nú í vetur, mundi ekki hafa nein áhrif á endurskoðun launalaganna. Jeg vænti líka, að hann telji það ekki blett á Íhaldsmönnum, þó að þeir hafi viljað launa þessum mikilhæfa landa okkar sæmilega í þeirri stöðu, sem hann gegnir fyrir hönd þjóðarinnar úti í Danmörku. Þess vegna vil jeg mótmæla algerlega þeirri staðhæfing hæstv. ráðherra, að með samþykt þeirrar till., sem hjer liggur fyrir, snúi Alþingi neina snöru að hálsi sjer í framtíðinni, og af því að jeg virði hæstv. dómsmrh. mjög mikils, þá vona jeg, að hann hafi ekki á þessu þingi snúið neina snöru, sem fjelli ólíkt þjettara að hálsi þjóðfjelagsins, að því er fjárþol þess snertir, með allri bruðlunarsemi sinni og flokkanna, er hann styðst við. Jeg er reiðubúinn að forsvara, að hjer er frá okkar hendi ekki farið fram á neitt óhæfilegt, heldur aðeins jafnrjetti, sem er á fullum rökum bygt.
Jeg sje heldur ekki, hvað ísaár, harðæri eða hallæri komi þessu máli við, fremur en svo mörgum öðrum í líkum tilfellum, er miða til útgjalda.
Hæstv. dómsmrh. benti á símaverkfræðinginn við landssímann og sagði, að handa honum mætti krefjast hárra launa, af því að það fyrirtæki gæfi ríkissjóði svo miklar tekjur, en nefndi þó ekki, hvað miklu þær tekjur nema á ári. En úr því hæstv. ráðh. tók þetta til fyrirmyndar, þá mætti einmitt með ekki minna rjetti halda því fram, að þeir menn, sem árlega draga stórar fúlgur inn í landhelgisjóð, án þess nokkur gjöld þurfi að leggja á landsmenn, ættu ekki síður að eiga kröfu til sæmilegra launa.
Að við, sem að brtt. stöndum, höfum borið þær fram til þess að tefja málið, neita jeg algerlega, nema að ákveðið sje af þeim meiri hl., sem ræður, að engu megi breyta, ef málið á að komast fram. Hjer er aðeins fylgt þingvenju, að koma með brtt. til þess að bæta úr því, sem miður fer. Þess vegna mótmæli jeg því sem annari rakalausri staðhæfing, að þungamiðjan í okkar brtt. sje sú, að auka útgjöld ríkissjóðs. Ef hæstv. dómsmrh. hefði ekki gengið annað til í þessu máli en einlægur sparnaðarvilji, þá var honum opinn vegur að láta þau lög koma til framkvæmda, sem í gildi eru um þessa hluti.
(* Ræðuhandr. óyfirlesið.)