04.02.1928
Efri deild: 14. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í C-deild Alþingistíðinda. (1388)
19. mál, stjórnarskipunarlög
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Þó að frv. þetta sje að formi til stjfrv., hafði jeg ekki gert ráð fyrir að taka til máls v ið þessa umr., af þrem ástæðum: Í fyrsta lagi er frv. þetta arfur frá fyrverandi stjórn, í öðru lagi hefi jeg áður gert grein fyrir afstöðu minni til stjórnarskrármálsins, og í þriðja lagi á jeg ekki atkvæðisrjett í þessari hv. deild. En hv. 3. landsk. gaf mjer tilefni til að segja nokkur orð.
Hv. þm. mintist á mína fyrri afstöðu til þessa máls og sagði, að jeg hefði manna best rökstutt sparnaðarhlið málsins. Þau ummæli mín er jeg reiðubúinn til að standa við, og mun jeg, þrátt fyrir alt, greiða frv. atkv. í Nd., ef til kemur. En jeg hefi ástæðu til að rifja upp mína framkomu annarsvegar og Íhaldsmanna hinsvegar í því, að vilja í alvöru vinna að sparnaði í þessu máli.
Í fyrra var jeg formaður stjórnarskrárnefndarinnar í Nd. Þá átti jeg orðaskifti við hv. 3. landsk., þáverandi hæstv. forsrh. Jeg bauð honum hvað eftir annað að vinna að málinu af kappi, ef frv. fjallaði aðeins um þinghald annaðhvert ár, en hv. 3. landsk. neitaði allri samvinnu við mig. Hv. 3. landsk. vildi búa til hægari aðstöðu fyrir sinn flokk í framtíðinni. En honum var engin alvara um það, að vilja spara.
Við í stjórnarskrárnefndinni gerðum fleira til þess að láta málið fá svip af sparnaði. Það varð að samkomulagi, að láta breytinguna snúast um tvö atriði, þinghald annaðhvert ár og fækkun þingmanna um 6, með því að leggja niður landskjör. Það er mikilvægt atriði, sem við í nefndinni vorum flestir sammála um. Þegar að atkvgr. kom, lögðum við Framsóknarmenn fram 3/4 hluta atkv., en einn maður úr Íhaldsflokknum, utan nefndar, var með okkur. Íhaldsflokkurinn hefir þannig altaf verið þrándur í götu þess, að koma málinu fram í sparnaðarskyni. Og þó ætlar hv. 3. landsk. að láta líta svo út, að fyrir sjer vaki ekkert annað en sparnaður!
Honum hefir verið boðin höndin hvað eftir annað, en hann hefir hrint henni frá sjer.