04.02.1928
Efri deild: 14. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í C-deild Alþingistíðinda. (1399)
19. mál, stjórnarskipunarlög
Ingibjörg H. Bjarnason:
Á síðasta þingi átti jeg sæti í stjórnarskrárnefnd þessarar hv. deildar; fór jeg þá síst dult með, að jeg var stjórnarskrárbreytingunni andvíg, en vildi þó ekki með atkvæði mínu verða málinu að bana; kaus því að sitja hjá, er endanleg atkvgr. fór fram um málið. Afstaða mín er því hin sama nú og á síðasta þingi, enda sje jeg ekki, að frv. hafi batnað neitt frá í fyrra.