14.02.1928
Efri deild: 22. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í C-deild Alþingistíðinda. (1408)
48. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Frsm. meiri hl. (Ingvar Pálmason):
Jeg þarf ekki að segja mörg orð um frv., en jeg vildi aðallega minnast nokkuð á brtt. mína á þskj. 117. Eins og nál. ber með sjer, hefir meiri hl. orðið sammála um að mæla með því, að þessi rjettarbót gangi fram.
Jeg fyrir mitt leyti lít hinsvegar svo á, þó að jeg telji þessa breytingu á kosingarrjettinum rjettmæta, að engin nauðsyn beri til, að kjörgengi fylgi. Það er þess vegna, að jeg hefi borið fram brtt. mína við 2. gr. á þskj. 117. Í gildandi lögum er það ákvæði, að sá er kjörgengur, er kosningarrjett hefir, og verði þetta frv., sem hjer liggur fyrir, samþ. eins og það er, þá gerir það ekki aðeins breytingu á kosningarrjetti, heldur líka á kjörgengi. En eins og jeg hefi áður sagt, tel jeg ekki, í þessu tilfelli, nauðsyn á, að það tvent fylgist að.
En þessa breytingu á aldurstakmarkinu, að því er kosingarrjettinn snertir, álít jeg mikilsverða rjettarbót og sjálfsagða. Er hún nú og fengin víða í menningarlöndum. Enda má líka benda á það, því til stuðnings, að það hvíla nú orðið margar skyldur á unglingum á þessu reki. Það eru svo margvísleg rjettindi, sem þeir hafa öðlast, að lítil ástæða virðist til að halda fyrir þeim þessum rjetti, með því líka það eru einmitt þessir ungu menn, sem vinna fyrir hæstu kaupi og eru því, margir hverjir, hinir hæstu gjaldendur sveitanna.