03.03.1928
Neðri deild: 38. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 736 í B-deild Alþingistíðinda. (141)
1. mál, fjárlög 1929
Einar Jónsson:
* (* Ræðuhandr. óyfirlesið.) Hv. samþm. minn (GunnS) hefir að nokkru leyti leyst mig frá því að tala langt mál. Þó kemst jeg ekki hjá því að svara þeim tveim hv. þm., sem orðið hafa til þess að andmæla því, að Rangárvallasýslu yrði endurgreiddur dálítill hluti af þeim kostnaði, sem hún lagði út til endurbyggingar Holtavegarins. En þeir, sem mælt hafa á móti þessu, voru þeir hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) og nú að lokum hæstv. fjmrh., og furðar mig, satt að segja, að þessir menn, sem jafnan hafa kynt sig að samviskusemi og rjettdæmi, skuli hafa orðið til þess.
Enda grunar mig fastlega, ef hv. 1. þm. S.-M. vildi gera sjer það ljóst, við hvílíka einangrun í samgöngum Rangæingar hafa að búa, þar sem vitanlegt er, að sýslan hefir aldrei nein not af strandferðum eða öðrum skipaferðum, að hann sje svo sanngjarn maður að viðurkenna, að Rangárvallasýsla eigi ekki að verða útundan, heldur beri að styrkja hana á þann eina hátt, sem hægt er, en það er að ljetta undir með vegagerðum hennar. Og þó að hann beiti sjer mjög fyrir bættum samgöngum á sjó, bæði í sínu kjördæmi og víðar, þá ætti það ekki að hindra hann í að styðja þær sýslur í samgöngubótum á landi, sem engin not hafa af strandferðum. Enda finst mjer, að samskonar kröfur — um bættar samgöngur landsmanna –eigi að vera jafnrjettháar frá öllum sýslum landsins.
Jeg býst líka við, að hægt sje að fullyrða og færa sönnur fyrir, að hvergi muni meiri bílaumferð en á vegum Rangárvallasýslu, og þó einkum á Holtaveginum. En þessi mikla umferð verður til þess að spilla vegunum, svo að viðhaldskostnaður eykst með hverju ári.
Á þessum vegum er ekki aðeins að ræða um umferð bíla í þarfir hjeraðsbúa, heldur þeysir þarna um fjöldi fólks, sem er að skemta sjer, ekki aðeins við að skoða fagra og merkilega staði, eins og Heklu, Fljótshlíð og Þórsmörk, heldur til að skoða hjeraðið yfir höfuð. Og þessar bílaumferðir eru orðnar ótakmarkaðar og margfaldast með hverju árinu. Hjer er ólíku saman að jafna og strandferðum. Skipin, sem sigla fram með ströndum Austfjarða, spilla ekki þeim vegum, er þau fara um. Sjórinn er altaf hinn sami, en vegir okkar Sunnlendinga vaðast út og verða á stundum lítt færir, þegar bílaumferðin er sem mest. Þessi krafa Rangárvallasýslu, sem borin er fram í XXXV. brtt. á þskj. 353, er því mjög sanngjörn, enda trúi jeg ekki fyr en jeg tek á, að hv. þdm. fallist ekki á hana.
Jeg veit ekki, hvort jeg ætti að tefja tímann með að minnast lítillega á sýsluvegi Rangæinga, sem eflaust eru þyngri byrði þessari sýslu en sýsluvegir í öðrum sýslum landsins. En eins og landið kostar miklu fje til strandferða í ýmsum landshlutum, þá hljóta þeir, sem engin not hafa slíkra samgöngubóta, að eiga heimting á, að komið sje upp hjá þeim nothæfum póstvegum.
En það tekur ekki langan tíma, þó að jeg minnist á þá löngu sýsluvegi, er Rangárvallasýsla verður að standa straum af.
Það er þá fyrst Fjallabaksvegur, sem liggur frá miðjum Holtaveginum upp í Landsveit, og þaðan austur að fjallabaki og niður í Skaftártungu. Þetta er langur sýsluvegur, ófullkominn á köflum, veðst út í vætutíð og er þá mjög spilt af bílaumferðinni. Þá er það Fljótshlíðarvegur, sem verður einna harðast úti vegna hinnar miklu umferðar austur í Fljótshlíð og Þórsmörk; þá er Þrasabraut, vestarlega í Holtunum. Allir þessir vegir verða sýslunni mjög kostnaðarsamir, vegna þess að þeir eru svo ófullkomnir og þola ekki hina stanslausu umferð bílanna. Þá er það Árbaugsvegur fram í Þykkvabæ, Oddhólsbraut á Rangárvöllum og Affallsvegur fram í Landeyjar, auk allra hreppaveganna, sem margir eru langir og erfiðir.
Allir þessir vegir eiga sammerkt um það, að alstaðar er erfitt um ofaníburð og bygging þeirra og viðhald því ærið þungur baggi á sýslunni og hjeraðsbúum.
Það var rjettilega tekið fram af hv. samþm. mínum, að það er mikill munur að bera ofan í Holtaveginn eða Flóaveginn, þar sem hraun er undir honum öllum og ofaníburður víðast hvar nærtækur.
Að lokum vil jeg taka það fram, að jeg tel sanngjarnt, að Árnessýsla fái sínum kröfum framgengt, og svo munu fleiri álíta. En þá get jeg ekki skilið, að hæstv. fjmrh. skuli standa á móti því, að Rangárvallasýsla verði sömu ívilnunar aðnjótandi.
Aðstöðumunur sýslnanna er aðeins sá, að Rangárvallasýsla hefir reynt að standa við sínar skuldbindingar, en það hefir Árnessýsla ekki gert. Hún hefir reynt að skulda alt, sem hún átti að leggja fram. Og ef það verður nú ofan á að sleppa henni við að greiða skuldir sínar, en ívilna Rangárvallasýslu ekki í neinu, þá verður ekki annað sjeð en að þingið með því gangi inn á þá braut að ala upp í mönnum óskilsemi og að virða að vettugi skuldbindingar sínar. — Báðar sýslurnar hljóta að hafa rjett til þessarar ívilnunar, og Rangárvallasýsla þó ekki síður.
Og þó að hæstv. fjmrh. telji kröfu Rangárvallasýslu rjettlægri af því að engar óskir liggja fyrir um þetta frá sýslunefnd eða hjeraðsbúum, þá skiftir það engu máli. Krafan er jafnrjetthá og sanngjörn fyrir því, enda væri ekkert hægra en að síma strax austur, og mundi þá fljótt fást samþ. allra Rangæinga til þessa.