17.02.1928
Efri deild: 25. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í C-deild Alþingistíðinda. (1426)

79. mál, yfirsetukvennalög

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Jeg ætla að leyfa mjer að segja nokkur orð nú, þótt búið sje að ræða þetta mál allítarlega á undanförnum þingum.

Jeg álít það naumast vansalaust, hve mikil tregða þessu máli hefir verið sýnd undanfarið, þó jeg játi, að málsbætur sjeu fyrir hendi frá hálfu þeirra manna, er staðið hafa móti því, þar sem ekki er hægt að telja fulltrygt, að betri yfirsetukonur fáist, þó að launin sjeu hækkuð. En það er og ætti að vera aðaltilgangur frv. En sje máli þessu ekki sínt, þá getur það orðið til þess að yfirsetukonur fáist ekki í sum hjeruðin, og má þá engan furða, þó að slys geti hlotist af, í sambandi við barnsburð kvenna. En til þess að tryggja aðaltilganginn, hygg jeg rjett, að báðir sveigðu nokkuð af, svo að betri niðurstaða fengist. Það, sem jeg hygg að gera þurfi — og mun jeg bera fram brtt. um það við 3. umr. — er það, að tryggja það, að óhæfar yfirsetukonur, vegna aldurs t. d., sitji ekki áfram æfilangt. Til þess að koma í veg fyrir það, að þær sætu of lengi, mætti t. d. haga starfssamningi þeirra svo, að þær væru ráðnar til 5 ára í senn, sem svo mætti endurnýja, meðan ástæða þætti til. Væri þetta gert, þá er rangt að vera á móti þessu frv., sem ætti að vera til þess, að fá hæfari konur í þessar stöður.