03.03.1928
Neðri deild: 38. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 755 í B-deild Alþingistíðinda. (144)

1. mál, fjárlög 1929

Hjeðinn Valdimarsson:

Jeg vildi svara hv. frsm. (BÁ) nokkrum orðum út af sundkennurunum í Reykjavík. Hann bar þá einu ástæðu fram gegn brtt. minni, að búast mætti við, að bæjarstjórn Reykjavíkur sæi um þetta.

Ef litið er til liðsins um sundkennara í XVIII. lið í 14. gr., þá eru þessi rök ekki góð fyrir háttv. framsögumann. Þar eru ætlaðar 1500 krónur til sundkenslu við opinbera skóla í Reykjavík. Er ætlast til, að sundið sje kent tvo mánuði á ári aðeins, vor og haust, en reynslan hefir orðið sú, að tveir kennarar hafa kent sund alt árið í kring, og því gert miklu meira en fjárlögin krefjast. Það myndi því síst of langt gengið, þótt greiddar væru úr ríkissjóði 3000 kr. í stað 1500 kr., eins og till. mín fer fram á. Reykjavík er sundmiðstöð alls landsins; þar eru flestir opinberir skólar og þangað leita allir, sem læra vilja sund til hlítar. Er því mikils um vert fyrir allan landslýð, að sundkensla sje í besta lagi í Reykjavík. En úr því að fjvn. vill ekki ljá þessu máli fylgi sitt, skora jeg á hv. deild að bregðast svo vel við, að þessir ágætu kennarar þurfi ekki að hröklast af landi brott.