03.03.1928
Neðri deild: 38. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 756 í B-deild Alþingistíðinda. (145)
1. mál, fjárlög 1929
Jón Auðunn Jónsson:
Mjer heyrðist hæstv. forsrh. (Trh) óska þess, að fjárveitinganefnd tæki til athugunar fjárveitinguna til brimbrjótsins í Bolungarvík. Kom mjer þetta á óvart, vegna þess, að Alþingi veitti í fyrra 17500 kr. til brimbrjótsins, og hefði að sjálfsögðu ekki verið byrjað á neinum framkvæmdum, ef ekki hefði verið búist við ríkisstyrk til að ljúka verkinu.
Mjer heyrðist á hv. frsm., að nefndin væri hlynt þeirri uppástungu hæstv. forsrh. að fresta að taka ákvörðun um þessa fjárveitingu. Jeg treysti því þó, að nefndin fari ekki að bregða loforðum síðasta þings og sjái fram á nauðsyn málsins. En ef nefndin treystir sjer ekki til að mæla með fjárveitingunni, mun jeg síðar taka upp till. nefndarinnar, ef hún mót von minni gugnar og hættir við að bera tillöguna fram.