13.03.1928
Efri deild: 46. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 107 í C-deild Alþingistíðinda. (1469)

105. mál, nýbýli

Frsm. meiri hl. (Einar Árnason):

Jeg sje ekki neina ástæðu til að halda langa ræðu um þetta mál. Meiri hl. landbn. getur ekki fallist á, að rjett sje að afgreiða þetta mál nú, því að svo stendur á, að samskonar mál lá fyrir síðasta þingi, og var þá gengið svo frá því, að því var vísað til milliþinganefndar þeirrar í landbúnaðarmálum, er þá var kosin. Var til þess ætlast, að hún tæki það til athugunar og kæmi svo fram með tillögur. En nú hefir nefndin ekki ennþá komist yfir að athuga þetta, og leggur því meiri hl. nefndarinnar til, að þetta verði látið bíða um stund, þar til milliþinganefndin hefir haft tækifæri til þess að taka það til athugunar. Þess vegna vill meiri hl. láta afgreiða þetta frv. með þeirri rökstuddri dagskrá, sem flutt er á þskj. 427.