27.03.1928
Efri deild: 58. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í C-deild Alþingistíðinda. (1479)

68. mál, hafnargerð á Skagaströnd

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Að því er vikið í nál., að nefndin telur rannsókn á þessu hafnarstæði vera ófullnægjandi til þess, að rjettmætt verði talið að byggja á henni jafnmikil fjárframlög sem frv. gerir ráð fyrir. Fyrir nefndinni lá allmikið af skjölum viðvíkjandi þessari hafnargerð, þar á meðal gömul mæling á höfninni og áætlun, sem ekki hefir verið athuguð síðar nákvæmlega; en núverandi vitamálastjóri telur, að sú áætlun, sem í skjölunum felst, um kostnað við hafnargerðina muni vera sæmilega rjett. En þar sem um svo mikið mannvirki er að ræða, þá lítur sjútvn. svo á, að það verði að krefjast þess, að fyrir liggi ítarleg mæling á þessum stað, og áætlun, sem bygð er á þeirri mælingu.

Meðal annara skjala, sem fyrir nefndinni lágu, var umsögn skipstjórans á „Esju“, Þórólfs Beck, þar sem hann getur þess, að þarna á þessum stað geti verið um annað hafnarstæði að ræða. Jeg skal ekki leggja dóm á, hvað mikið er á þessu að byggja, en þó hygg jeg, eftir því sem jeg þekki þann mann, að það muni ekki vera fleipur eitt. En þessu virðist ekki hafa verið gaumur gefinn, og umsögn vitamálastjóra er óákveðin og ber vott um, að málið hafi ekki verið nægilega rannsakað; því að hann segir, að að sögn kunnugra manna að norðan sje ekki um neinn annan hafnarstað að ræða; með öðrum orðum: það hefir engin rannsókn farið fram á þeim stað, er skipstjórinn minnist á.

Jeg skal taka það fram strax, að sjútvn. telur, að hafnargerð á Skagaströnd sje eitt af okkar nauðsynjamálum, en hins vegar hlýtur hún altaf að verða mjög dýr, og við teljum ógerlegt að leggja út í svo stórt mannvirki, eða ákveða það með lögum, fyr en fengin er sæmileg rannsókn og áætlun.

Það er ekki hægt að sjá af þeim skjölum, sem fyrir nefndinni lágu, hvort botn hafnarsvæðisins hafi verið rannsakaður. Við spurðum þá vitamálastjóra um þetta, meðal annars vegna þess, hvernig ætti að haga byggingu hafnargarðsins. Við fengum það svar, að botninn hefði ekki verið rannsakaður, en garðinn ætti að hyggja úr steini. Þó að enginn okkar hefði sjerstaklega vit á þessu máli, þá virtist okkur þetta eitt hljóta að benda til þess, að töluvert væri ábótavant undirbúningi þessa máls, þegar slegið er föstu, að garðurinn skuli bygður úr steinsteypu, en botninn sje þó ekki rannsakaður. Mjer virðist hjer liggja fyrir sönnun þess, að það stappi nærri að vera óforsvaranlegt, að ákveða með lögum þessa hafnargerð.

En til þess að úr þessu máli verði sem fyrst ráðið á sem hagkvæmastan hátt, viljum við nefndarmenn leggja til, að málinu sje nú á þessu stigi vísað til stjórnarinnar, til frekari rannsóknar. Jeg hygg, eins og málið liggur nú fyrir, þá sje það sú heppilegasta úrlausn, sem fengin verður.

Jeg sje svo ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta; jeg geri ráð fyrir, að mjer hafi tekist að gera það nægilega skýrt, hverjar eru orsakir þess, að sjútvn. leggur til, að málið verði afgreitt á þennan hátt.