27.03.1928
Efri deild: 58. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í C-deild Alþingistíðinda. (1485)

68. mál, hafnargerð á Skagaströnd

Erlingur Friðjónsson:

Jeg skal ekki lengja umræður mikið, en mjer finst þörf að segja nokkur orð um þetta mál, sem er stórmál, um leið og það kemur úr nefnd.

Þegar um er að ræða að leggja í fyrirtæki eins og þetta, þarf að gera sjer rækilega grein fyrir því, hversu mikil nauðsyn er á því og hversu líklegt er, að það komi til með að borga sig. Jeg er náttúrlega ekki vel kunnugur málavöxtum þarna norður frá, en hefi þó komið þangað nokkrum sinnum. Og jeg get ekki varist því að láta uppi þá skoðun mína, að jeg álít þetta verk í sjálfu sjer þess eðlis, að mjög sje vafasamt, að það borgi sig að kosta svona miklu til. Annars lítur það svo út fyrir mínum sjónum, að málið sje órannsakað ennþá, hvort ekki sje hægt að gera þarna bátakví, sem yrði til muna ódýrari en bráðabirgðaáætlunin gerir ráð fyrir. Jeg held, að nauðsyn á hafnargerð þarna sje aðallega bundin við það, að fá sæmilega tryggan stað fyrir mótorbátaútgerð, ef hún risi þarna upp. Jeg held að vanti rannsókn á því, hvort fiskimið sjeu svo nærri þessum stað, að þarna geti slíkur útvegur þrifist í stórum stíl. Það er að sönnu talað um síldarbræðslustöð, og ef til vill síldarsöltun þarna, en þess má þá geta, að til þess að búa í haginn fyrir slíkt, þarf að kosta meira til undirbúnings við höfnina en gert er ráð fyrir samkvæmt þeirri áætlun, sem fyrir liggur. Þarna er ekki að ræða um að mynda kaupstað, sem hafi aðstöðu til að selja til hjeraðsins, því að þegar kemur inn fyrir Blönduós, er fjarlægðin orðin of mikil til þess. Jeg fæ alls ekki sjeð, að höfnin verði notuð til verslunar fyrir aðalsýsluna. Sem verslunarstaður yrði því þetta aðallega fyrir Skagaströndina, sem er ekki þjettbygð og hefir ekki skilyrði til þess, að þar geti aukist bygð að mun.

Það má vera, að hv. flm. málsins (GÓ) þyki ekki blása byrlega úr þessari átt til frumv. En jeg vildi láta mína skoðun í ljós í þessu máli, ekki sjerstaklega gagnvart mannvirkinu þarna, sem verið er nú að tala um, heldur vegna ýmissa hafnargerða og mannvirkja við sjávarsíðuna, sem umsóknir liggja fyrir um fjárstyrki til. Mjer virðist, að talsvert mikið fje hafi verið lagt af mörkum oft og tíðum til ýmissa slíkra fyrirtækja, án þess að nógu rækilega hafi verið athugað, hvað upp úr því væri að hafa. Jeg vildi segja hreinskilnislega, að mitt álit er þetta. Jeg vil því fara sem varlegast í málinu. Fyrst og fremst verður að krefjast þess, að rannsakaður sje botninn með sjerstöku tilliti til þess, úr hverju hafnargarðurinn verður bygður. Það er gert ráð fyrir, að hann verði bygður úr steinsteypu, og er hið mesta óráð að byrja framkvæmdir, án þess að rannsakað sje og fullvíst, að botninn sje öruggur og í samræmi við það. Enda getur það miklu valdið um kostnaðinn, hvernig þessu er háttað.