16.03.1928
Neðri deild: 49. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í C-deild Alþingistíðinda. (1496)
95. mál, sjúkraskýli og læknisbústaðir
Magnús Torfason:
Jeg ætla aðeins að þakka hv. allshn. fyrir meðferð þessa máls. Og hvað drættinum viðvíkur, þá hefir hv. frsm. gert sig svo mjúkan, að hann nýtur þess hjá mjer. En hvað snertir fyrri brtt., þá er hún til bóta, gerir frv. nákvæmara en það var. Við höfðum ætlast til, að 9. gr. ætli við þau tilfelli, en það er ekki nema gott, að kveðið er nánar á um það en gert var.
En hvað hina brtt. snertir, þá hefði jeg að vísu betur kunnað við, að sjúkraskýlin fengju þá hjálp til að innheimta útistandandi skuldir, sem ákveðin er í 6. gr. Heimur versnandi fer, og mun þeim naumast af veita henni. En það er þó ekki hægt að segja, að sjúkraskýli sjeu opinberar stofnanir, og frá því sjónarmiði get jeg skilið; að nefndin hafi ekki álitið það þess vert. Get jeg og sætt mig við þessa brtt.