28.01.1928
Efri deild: 8. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 165 í C-deild Alþingistíðinda. (1536)

31. mál, síldarmat

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Saga þessa frv. er sú, að í árslok 1926 skipaði fyrv. stjórn nefnd til þess að endurskoða lög um síldarmat og koma fram með breytingar á þeim. Álit nefndarinnar var eigi tilbúið fyrir síðasta þing, sem eigi var von, og kom það fyrst í hendur stjórnarinnar nokkru fyrir síðustu áramót. Sá jeg, að nefndin var svo skipuð, að eigi mundi líklegt, að horfði til bóta, að jeg breytti mikið tillögum hennar, enda eigi tími til þess. Er frv. því borið fram með sömu ummerkjum og þegar það kom frá nefndinni. Að öðru leyti get jeg látið nægja að vísa til athugasemdanna, sem fylgja því.

Leyfi jeg mjer svo að leggja til, að frv. verði, að umr. lokinni, vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.