23.01.1928
Neðri deild: 4. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í C-deild Alþingistíðinda. (1539)
18. mál, dýralæknar
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Þó að hjer sje um stutt og lítið frv. að ræða, hefi jeg orðið var við nokkurn andgust gegn því nú þegar. Þannig hefir, til dæmis, af hálfu eins dýralæknis verið samið annað frv., sem gengur í þveröfuga átt við þetta, nefnilega fjölgun dýralækna. Það fer svo oftast, ef á að gera tilraun til að fækka opinberum starfsmönnum, þá má telja vísa gagnsókn úr ýmsum áttum.
Það mun hafa verið á þinginu 1925, frekar en 1926, sem samþ. var þál. um að skora á stjórnina að veita ekki embætti, þegar þau losnuðu, ef svo stæði á, að hægt væri að vera án þeirra.
Nú stendur svo á, að ein dýralæknisstaða hefir losnað, og þá kemur hitt til álita, hvort unt sje að vera án þess að skipa í öll dýralæknaembættin.
Jeg tel mjög vafasamt, eins og okkar búnaðarháttum og samgöngum er nú farið, að svo mikið gagn sje að dýralæknum sem til hefir verið ætlast og ætti að vera. Eins og nú er háttað samgöngum um þau stóru hjeruð, sem dýralæknar vorir hafa til yfirsóknar, mun mega segja að mestu, að aðalnotin af þeim hafi verið ráðleggingar gegnum síma, og er þá augljóst, að til dæmis vestur á Barðaströnd er eins hægt að tala við dýralækni í Reykjavík eins og í Stykkishólmi. Hinsvegar er jeg ekki í vafa um, að sá tími komi, að sjálfsagt verði að fjölga þessum starfsmönnum aftur, þegar landbúnaði vorum og samgöngum hefir verið komið í gott horf. En jeg vil halda því fram, að reynslan hafi sýnt það, að lítið gagn hafi orðið að þeim tveim dýralæknaembættum, sem jeg nú legg til að sjeu lögð niður. En ef þetta frv. verður ekki samþ., sem jeg ekki ætla að gera að neitt sjerstaklega miklu kappsmáli, þá tel jeg sjálfsagt að breyta til. Jeg álít t. d., að dýralæknir komi að meiri notum, ef hann situr í Borgarnesi en í Stykkishólmi, og ef á að vera dýralæknir á Austfjörðum, þá á hann auðvitað að vera uppi á Hjeraði, en ekki niðri í kaupstaðnum. Jeg vil beina því til þeirrar nefndar, sem máli þessu verður vísað til, að hún athugi þetta, ef hún ekki getur fallist á frv., þá að athuga hitt, hvort ekki sje rjett að breyta til, svo að meira gagn verði að.
Samhliða því sem jeg vil vera kröfuharður fyrir landbúnaðarins hönd um alt það, er honum miðar til hagsbóta, vil jeg leggja ríka áherslu á það, að ekki sje haldið uppi opin berum starfsmönnum, sem ekki eiga fullan tilverurjett. Dýralæknar koma ekki að fullu liði í baráttu bænda við ýmsa alidýrasjúkdóma. Í því sambandi álít jeg annað nauðsynlegra. Það þarf að koma upp stofnun, sem geti á vísindalegan hátt rannsakað eðli og orsakir búfjársjúkdóma, sem mestum spellum valda, t. d. bráðapest, ormaveiki, fjöruskjögur, fjárkláða o. s. frv., og á þeim grundvelli fundið ráð, sem duga til þess að vinna bug á þessum vogestum íslensks landbúnaðar. Ef hann á áfram að geta með rjettu heitið hinn tryggi atvinnuvegur, verður ekki hjá því komist að stofna til slíkrar starfsemi.
Jeg get hinsvegar sagt, að jeg geri þetta mál ekki að sjerstöku kappsmáli, en jeg álít það mjög verjandi frá landbúnaðarins sjónarmiði, að fækka þessum starfsmönnum. En svo mun reynast enn sem fyr, að hægra er að fjölga en fækka.
Að loknum umr. legg jeg til, að frv. verði vísað til landbn.