20.02.1928
Neðri deild: 27. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í C-deild Alþingistíðinda. (1554)

18. mál, dýralæknar

Frsm. meiri hl. (Lárus Helgason):

Vegna þess, að frsm. landbn., hv. 2. þm. Eyf., er ekki viðstaddur, mun jeg sem formaður nefndarinnar fylgja nál. úr hlaði með nokkrum orðum.

Eins og nál. ber með sjer, hefir nefndin ekki getað orðið á eitt sátt í þessu máli. Fjórir nefndarmanna hafa orðið sammála um það, að sá sparnaður, sem leiðir af fækkun dýralækna, komi ekki að tilætluðum notum. Eins og drepið er á í nál., virtist nefndinni, að með betri tilhögun megi hafa meiri not af dýralæknunum hjer eftir en hingað til. Má þó ekki skilja þetta svo, að þeir hafi ekki orðið að notum. Ennfremur leit nefndin svo á, að ef tekið væri í lög, að eigi skulu vera nema tvö dýralæknaembætti hjer á landinu, þá muni ungum og efnilegum mönnum þykja svo óárennilegt, að stunda dýralæknisnám, að svo getur farið, að enginn fáist til að gegna þessum tveim embættum. Nefndinni virtist einnig, að hjer væri ekki um verulegan sparnað að ræða, og að niðurlagning embættisins mundi vekja óánægju, eins og komið hefir fram, þegar sameina hefir átt önnur embætti, eins og t. d. sýslumannaembættin. Nefndin áleit, að til hins sama mundi draga, ef dýralæknum yrði fækkað. Hv. 1. þm. Árn. hefir ekki getað átt samleið með öðrum nefndarmönnum, og mun hann sjálfur gera grein fyrir áliti sínu.

Jeg vænti þess, að hv. deild geti fallist á álit meiri hl., og mun því ekki orðlengja meira um málið.