20.02.1928
Neðri deild: 27. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í C-deild Alþingistíðinda. (1555)
18. mál, dýralæknar
Frsm. minni hl. (Jörundur Brynjólfsson):
Hv. frsm. meiri hl. ljet þess getið, að þegar bornar væru fram till. um fækkun embætta, kæmi það fram, að menn vildu ekki missa þau. Jeg held, að það eigi nú ekki alstaðar við. En hvað sem um það er, þá álít jeg ekki rjett að líta á það eitt út af fyrir sig, heldur það, hvort embættin eru nauðsynleg eða ekki, og hvort starfið svarar til kostnaðar. Í mörg ár hefir verið kvartað yfir háum útgjöldum til embætta og sýslana. Og þegar litið er á tekjur landsins og skattabyrðar þær, er lagðar eru á borgarana, og launagreiðslu til embættismanna annarsvegar, þá held jeg, að þær kvartanir hafi ekki verið að ástæðulausu. Jeg hefi ekki aðgætt nákvæmlega, hve miklu er varið til launagreiðslu og beins kostnaðar við embætti og sýslanir, en hygg, að það sje ekki fjarri 5 milj. króna árlega. Þar að auki gengur í lögbundnar greiðslur, vexti og afborganir, ærið fje, svo að þessar upphæðir báðar verða um 7 miljónir. Með því að ganga nær gjaldþoli þjóðarinnar en tíðkast nokkursstaðar annarsstaðar, er hægt að fá tekjurnar upp í 10 milj. kr. á ári. Það er því bein skylda þingmanna, að gera alt, sem hægt er, til að draga úr kostnaði þessum, þjóðinni að skaðlausu. Má vel vera, að þess hafi hingað til verið síður gætt en skyldi, en það bætir ekki úr skák; þvert á móti. Og jeg verð að segja það um þetta frv., að jeg sje mjer ekki fært að leggjast á móti því, þegar litið er á verkefni þessara manna. Það er sannfæring mín, að litlu skifti, fyrir almenningsnot af dýralæknum, hvort þeir eru 2 eða 4, hvað ráðleggingar og vinnubrögð snertir. Þótt þeir sjeu fjórir, er það ekki nema sáralítill hluti landsmanna, sem hefir bein not af þeim. Aðalverkefni þeirra hlýtur jafnan að vera að vera landsstjórninni til leiðbeiningar og ráðleggingar í sjergrein sinni, og veita almenningi fræðslu, einkum þeim mönnum, sem hneigðir eru til að sýsla um skepnur. En sú starfsemi er ekki meiri en svo, að tveir menn gætu int hana af höndum. Það munar minstu, þegar um almenningsnot er að ræða, hvort þeim er fækkað niður í 2, eða fjölgað upp í 7, eins og hv. 2. þm. Rang. ber fram frv. um. Þó mundu að vísu fleiri ná til læknanna, ef slík fjölgun næði fram að ganga. En hversu margir hv. þm. munu treystast til að stofna 3 ný embætti, þegar vonin um aukið gagn af starfsemi þessara manna er ekki meiri en hún er? Þótt svo kynni að fara, að þörf yrði á þessari fjölgun síðar meir, vil jeg bíða þess tíma, að starfsemin komi að gagni. Enn sem komið er, er samgönguleysið þrándur í götu þess, að svo geti orðið.
Það kom fram við 1. umr., að illa ætti við að fækka þessum starfsmönnum, vegna sveita landsins, En þegar jeg er ekki sannfærður um gagnsemi embættanna, vil jeg ekki setja það fyrir mig, þótt fækkun þeirra gangi út yfir þann hluta landsins, sem hefir e. t. v. fæsta embættismenn starfandi fyrir sig. Hv. meiri hl. landbn. vill halda tölu dýralækna óbreyttri, en jafnframt auka starfssvið þeirra, einkum hvað almenningsfræðslu snertir. En eins og jeg hefi drepið á áður, duga 2 til þess alveg eins og 4. Jeg er ekki að vanþakka þessum mönnum starfsemi þeirra undanfarið, en aðstaða þeirra hefir verið þannig, að starfsemi þeirra hefir ekki getað komið almenningi að beinum notum. En hvað sem um málið má segja, vonast jeg eftir, að hv. deild samþykki fremur hina rökstuddu dagskrá landbn., heldur en brtt. frá 2. þm. Rang. á þskj. 245. Því að ef þær ná samþykki, er þingið búið að binda hendur sínar um fjölgun dýralækna, og það mundi jeg síst kjósa. Ef það verður gert, get jeg ekki annað sjeð en að við stöndum höllum fæti á eftir, um að fækka embættum og sýslunum, þótt full þörf kunni að vera þá. Jeg vona því, að þótt háttv. meiri hl. landbn. leggist á móti frv., þá samþykki hv. deild það óbreytt.