03.02.1928
Neðri deild: 13. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í C-deild Alþingistíðinda. (1566)
58. mál, dýralæknar
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Það eru aðeins fá orð, sem jeg þarf að láta falla um þetta frv. Þótt jeg sje því andvígur, vil jeg ekki beita mjer fyrir því, að það fari ekki til 2. umr. En háttv. flm. gat mín svo oft í ræðu sinni, að jeg verð að gera honum nokkur skil.
Jeg vil geta þess til skýringar, að jeg vil halda fast við þá skoðun mína, að það sje vel forsvaranlegt, frá sjónarmiði landbúnaðarins, að fækka dýralæknum. En ef því fæst ekki framgengt, þá tel jeg tvímælalaust hentugra að flytja þá til, þannig, að þeir búi innan um bændur. Og í því sambandi vil jeg taka það fram, að það hjerað, sem að sjálfsögðu hefir mesta þörf fyrir sjerstakan dýralækni, væri Suðurlandsundirlendið. (GunnS: Alveg rjett!).
Annars eru tvö atriði í sambandi við þetta frv., sem vert er að athuga. Annað er það, að nú sem stendur eru aðeins til 4 menn með prófi í dýralæknisembætti, og enginn við nám. Hjer er því um það að ræða, að setja löggjöf, sem kemur ekki til framkvæmda fyr en eftir 5–10 ár. Mjer finst rjettara, að láta þá fulltrúa, er þá sitja á löggjafarsamkomu þjóðarinnar, hafa fyrir því að ákveða um þetta atriði, eftir því, sem þá þykir henta. Hitt atriðið er þetta: Þegar stofnað er til nýrra embætta, má að minni hyggju ekki minna vera en að komið hafi fram um það rökstudd beiðni og berleg þörf sje fyrir hendi. Tilefnið er í þessu tilfelli algerlega ófullnægjandi. Það hefir ekki komið nein beiðni í þessa átt frá fólki utan af landi, heldur er frv. samið af einum dýralæknanna, sem nokkurskonar mótleikur gegn frv. því, er stjórnin ber fram, um fækkun dýralækna.