03.02.1928
Neðri deild: 13. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 222 í C-deild Alþingistíðinda. (1587)

60. mál, samskólar Reykjavíkur

Flm. (Magnús Jónsson):

Eins og háttv. þm. geta sjeð af fylgiskjölum, sem prentuð eru með þessu frv., höfum við þm. Reykjavíkur, allir fjórir, flutt þetta frv., samkvæmt einróma samþykt bæjarstjórnarinnar í Reykjavík.

Jeg stend nú upp, með ekki litlum ótta í hjarta, um afdrif þessa frv., af því að það varð hlutskifti mitt að fylgja því úr hlaði. En ekki er að vita, við hverju búast má um þessar mundir. Við flm. höfðum ritað undir frv. í þeirri röð, sem kosning okkar segir til um. Fór jeg þess á leit við samþingismann minn, háttv. 2. þm. Reykv. (HjV), að hann mælti fyrir frv. nokkrum orðum. En hann færðist undan. Varð jeg því að herða upp hugann og leggja af stað með frv., út á hið stormfulla haf þessarar háttv. deildar, hversu svo sem kann að fara um sjóferð þá.

Jeg vil leyfa mjer að vísa þeim, sem vilja kynna sjer málið, á nál. meiri hl. mentmn. Nd. í Alþt. 1927, og ræðu frsm. meiri hl. sömu nefndar, þm. V.-Ísf. (ÁÁ), í C-deild Alþingistíðindanna frá í fyrra. Jeg hefi þar engu við að bæta til skýringar málinu. Mætti þetta því nægja við þessa umr. Að henni lokinni vonast jeg til, að háttv. þdm. sjái sjer fært að hleypa frv. til 2. umr. og vísa því til mentmn.