07.02.1928
Neðri deild: 16. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í C-deild Alþingistíðinda. (1605)
69. mál, loftskeytanotkun veiðiskipa
Flm. (Sveinn Ólafsson):
Jeg hefi ekki ástæðu til að vera óánægður með undirtektir hv. 2. þm. G.-K.; gæti miklu fremur þakkað honum góðar undirtektir og þau vilyrði, að leggja eitthvað gott til þessara mála, þegar fram í sækir. Jeg verð hinsvegar að segja, að jeg get ekki fallist á þá skoðun hans, að með þeim ráðstöfunum, sem bent er á í frv. sje alveg fram hjá markinu skotið. Jeg held, að hann hafi hlaupið yfir 4. gr. frv. Einmitt í henni eru helstu varnarráðin, sem í frv. felast, og að nokkuru í 3. gr. Hv. þm. heldur, að jeg hafi ekki skilið þetta mál til hlítar, þegar jeg tók að mjer frv. til flutnings, og þess vegna hafi ekki verið betur um hnútana búið. Slík ummæli met jeg að engu. Það er vitaskuld — og jeg tók það fram í fyrri ræðu minni, að jeg geng að því vísu, að einhverju þyrfti að breyta. Við nána yfirvegun kunnugra manna, — jeg vil segja manna eins og hv. 2. þm. G.-K., getur auðvitað margt færst til betri vegar. Og mjer þykir mjög vænt um að eiga von á fulltingi hans og aðstoð við frekari athugun málsins.
Hv. þm. tók það fram, sem jeg hafði reyndar minst á áður, að það er auðvitað hægt — þrátt fyrir það, þótt dómsmálaráðherra hafi lykla að hverju launmáli — að senda skeyti á venjulegu máli og gefa orðunum einhverja sjerstaka merkingu. En slík meðferð daglegs máls er líka dulmál og rekur sig á ákvæði 3. gr. Það má auðvitað margvíslega fara í kringum þetta, og það var mjer og er fyllilega ljóst. En það kostar líka brot á drengskaparheiti því, sem gert er ráð fyrir í 3. gr., en þau og ákvæði 4. gr. lúta helst að því, að fyrirbyggja, að þetta verði að ósekju gert. Einhlítt verður auðvitað eftirlitið aldrei, þrátt fyrir strangar gætur, og þótt ráðuneytið hafi lyklana og geti borið skeytin saman. En fyr getur eftirlitið að gagni orðið en öllum brotum er aftrað. Auðvitað er það rjett, sem hv. þm. tók fram, að algerlega einhlíta ráðið er fjölgun varðskipa. En það er vitað, að langir tímar líða, áður en vjer verðum þess um komnir, að verja ströndina svo, að ekki verði kostur á að brjóta landhelgislögin. Og það er sjerstaklega meðan svo stendur, að þörf er á slíkum ráðstöfunum sem þessum, — eða þeim ráðstöfunum, sem torvelda landhelgisbrotin.
Af því að hv. 2. þm. G.-K. var hógvær í andmælum sínum, vil jeg ekki fara frekar út í það, sem getur gefið tilefni til ágreinings og deilu. Jeg býst við, að málinu verði að umræðunni lokinni vísað þangað, sem við báðir eigum kost á að fjalla um það, til sjávarútvegsnefndar.