07.02.1928
Neðri deild: 16. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í C-deild Alþingistíðinda. (1606)

69. mál, loftskeytanotkun veiðiskipa

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Hv. 2. þm. G.-K. tók rjettilega fram, að jeg mundi hafa átt þátt í samningu frv., og beindi því til mín nokkru af ræðu sinni. En jeg hefði hvort sem er viljað segja um þetta mál fáein orð, af því að málið er mjög stórt og þýðingarmikið, og af því að þessi hlið þess hefir enn sem komið er verið alveg vanrækt, þrátt fyrir það, að almenn vitneskja er um það, að loftskeyti sjeu mjög misnotuð af íslenskum veiðiskipum. Sú vitneskja, sem jeg held að ekki verði deilt um í þessu máli, er margtekin fram af fulltrúum ýmissa hjeraða, sem hlut eiga að máli. Jeg ætla það sje hv. þm. Borgf., hv. þm. Barð., hv. þm. Snæf. og fyrverandi 1. þm. (G.-K., Ágúst Flygenring, sem hafa oftar en einu sinni tekið það fram — og hv. þm. Snæf. (HSteins) árlega — hvað íslenskir togarar sjeu ákaflega sæknir í landhelgina. Og þeir segja, að skipstjórar geri þetta að yfirlögðu ráði, og spjöllin, sem þeir valda, sjeu ekkert smáræði, þar sem í kjölfar þeirra sigli útlendu togararnir og athafni sig þar rólega.

Jeg hefi nýlega haft ástæðu til að kynna mjer þetta af viðtali við loftskeytamann, sem hefir verið lengi á togara. Hann sagði mjer — sent kemur heim við það, sem þessir hv. þm. hafa borið — að það sje venjulegt, t. d. í Ólafsvík fyrri hluta vetrar og fram í mars, að togararnir komi þetta 6–7 í hóp, þegar fer að rökkva, togi þar á hinum mjúka botni í vikinni, slökkvi öll ljós, af því að þeir geta notað ljósin í þorpinu til þess að stýra eftir. Þegar fer að lýsa af degi, fara þessir veiðivargar eitthvað út í flóa, eitthvað í áttina til Grundarfjarðar eða að Búlandshöfða, og bíða þar í skjóli yfir daginn. Ef símað er til Reykjavíkur eftir varðskipinu, vita togararnir það undir eins, og eru allir á burt.

Jeg spurði loftskeytamann af íslensku skipi, hvað hann hjeldi að mikill partur af veiðinni væri tekinn í landhelgi, þegar mest væri. Hann áleit, að það væri oft yfir helming, ekki á vertíðinni allri, en aðallega þegar verið er að fiska fyrir enskan markað. Þetta er auðvitað ekki nema eitt vitni, en það er líka maður, sem hefir sjálfur verið á skipum, við loftskeyti. Hann var ekki að bera húsbændum sínum neitt illa söguna, skoðaði þetta sem mannlegan veikleika, eins og hv. 2. þm. (G.-K. En þegar vitnisburði frá skipunum sjálfum ber saman við það, sem fulltrúar sjávarhjeraðanna segja á þingi, er ekki að efa, að rjett sje með farið. — Meira að segja sagði einn af þessum þingmönnum á síðasta kjörtímabili, að loftskeytaáhöld væru beinlínis sett á togarana til þess að útgerðarmenn gætu með loftskeytum stjórnað lögbrotunum úr landi. Þetta hefir aldrei verið hrakið, enda mundi það erfitt, þar sem þetta vottaði skilríkur maður, sem sjálfur átti hlut að máli. Jeg tel þess vegna alveg sannað, fyrir meðvitund þjóðarinnar, að það er um stórkostleg brot að ræða af hálfu íslenskra skipa; og að þessi brot sjeu undirstaða undir allmiklu af öðrum brotum.

Nú vil jeg taka það fram, út af því, sem hv. 2. þm. G.-K. sagði, að það yrði áreiðanlega nokkuð dýr útgerð fyrir landið, ef ætti að fjölga skipum, þannig, að þau gætu verið alt í kringum landið; verið alstaðar á verði og haldið landhelginni hreinni, þó að loftskeytasendendur úr landi væru stöðugt að vara við, hvar sem þau kæmu. Jeg held, að það sje ekki hugsanlegt, að landið risi undir því, að gera út 5–6 skip, til eftirlits við landið, sem ekki veitti af, ef mögulegt ætti að vera að verja fyrir togurum, svo framarlega sem þeir hafa sömu aðstöðu og nú, til vitneskju um varðskipin.

Jeg býst við, að hv. 2. þm. G.-K. þyki það bera vott um mannlegan veikleika í mínu hjarta, ef jeg skrifta fyrir honum og segi: Meðan jeg á að hafa nokkur störf fyrir landhelgina, þá lít jeg á það sem aðalatriði, að af hverjum 10 togurum, sem teknir eru, sjeu hlutfallslega jafnmargir íslenskir sem útlendir, af þeim, sem raunverulega brjóta landhelgislögin. Við eigum ekki, viljandi eða óviljandi, að draga fjöður yfir það, sem íslensku skipin gera af sjer. Það er þegar sannað, að íslenskur togari með loftskeytatæki og sambandi við Reykjavík hefir miklu meiri möguleika til að verða spillir í landhelginni en t. d. þýskur togari. Þýskur togari fer inn í landhelgina á sína eigin ábyrgð, og án þess að hafa nokkur hjálpargögn í landi. Þess vegna er það, að þeir eru teknir svo oft, að þeir standa ekki undir neinum verndandi áhrifum, nema þegar þeir geta fylgt íslenskum togurum inn fyrir og flúið út fyrir, þegar þeir flýja. — Sú hugsun háttv. 2. þm. G.-K., að yfirleitt sje hægt að verja landhelgina með varðskipafjölda, er draumórar einir. Það sjá allir heilvita menn, sem opin hafa augun fyrir þessum hlutum, hversu mjög það er hægt fyrir togarana, sem hafa fyrst og fremst samband sín á milli, og auk þess samband við ýmsa í landi, að skjótast inn fyrir landhelgislínuna. Nú sem stendur eru varðskipin 2, og auk þeirra einn leigubátur, sem nú gætir landhelginnar við Snæfellsnes. En hvað megna þau í þessum skollaleik? Sáralítið móti íslenskum lögbrjótum. Jeg segi skollaleik, af því að mjer virðist þetta eins og nokkurskonar skollaleikur, þar sem varðskipin eru sá, sem bundið er fyrir augun á, en togararnir þeir sjáandi. Annars verð jeg að segja það, að mjer voru það veruleg vonbrigði, að annar togaraútgerðarmaðurinn, sem hjer á sæti í deildinni, skyldi verða til þess að mæla bót hinum auðvirðilegu afbrotum stjettarbræðra sinna móti landhelgisgæslunni. Það eina ráð, sem hann gaf, var að auka varðskipakostinn, svo að segja ótakmarkað. Vitandi þó, að það er ekki hægt, vegna fátæktar landsins. Og jafnframt, að það kæmi ekki einu sinni að fullu gagni, vegna hins fullkomna „spion-systems“, sem rekið er í sambandi við togaraútgerðina, því að það er eins og Ágúst Flygenring sagði eitt sinn, að togurunum er hreint og beint stjórnað hjeðan inn í landhelgina, með loftskeytum. Það er því höfuðsök, sem háttv. 2. þm. G.-K. hefir hjer gert sig sekan í, hann, sem er fulltrúi eins þess kjördæmis, sem á nær alla sína tímanlegu velferð undir því, að landhelginnar sje vel gætt. Hann talaði meira að segja með mildum orðum um brot togaranna. Og má í því sambandi minna á það, sem amerískur sálarfræðingur segir um drykkjumennina, sem falla aftur fyrir vínnautninni. Sá merki maður segir, að drykkjumennirnir kenni ekki víninu eða eitri þess um vesaldóm sinn, heldur geri þeir gælur við flöskuna, kalli hana tárið sitt, vinkonu o. s. frv. Hv. 2. þm. G.-K. fer nokkuð líkt að og þessir menn. Hann talar með gæluorðum um landhelgisbrotin, og telur ekki hægt að ásaka skipstjórana fyrir þau. Slíkt sje aðeins mannlegur breyskleiki.

Annars fanst mjer þessi háttv. þm. sanna það með ræðu sinni, sem margbúið er að sýna fram á áður, að brýn nauðsyn er á að fá ráðna bót á þessum vandkvæðum; gerði hann það fyrst og fremst með gælum sínum við lögbrjótana, og í öðru lagi með því að sýna fram á, hvernig bæði hann, og jafnvel fleiri, færu að því, að brjóta landhelgislögin.

Jeg lít svo á, að fyrirkomulag það, sem nú er stefnt að með landhelgisgæsluna, að byggja nýtt skip til aðstoðar „Óðni“ og leigja smærri báta, eins og t. d. nú er gert, til þess að verja staði eins og Ólafsvík, sem skipin mega helst aldrei yfirgefa, verði gagnslitið, ef togararnir geta altaf fengið vitneskju um, hvar varðskipin eru. Jeg er nú alls ekki að halda því fram, að frv. þetta mundi að öllu leyti koma í veg fyrir það, að togararnir gætu fengið vitneskju um ferðir varðskipanna, en mikil bót mundi eigi að síður verða að því. Auk þess stendur það til bóta. Þannig býst jeg við, að þingið herði á því, við meðferð þess í vetur, og svo verði stöðugt haldið áfram, þangað til því takmarki er náð, að veiðiskipin geti aðeins notað loftskeytin á heiðarlegan hátt, fengið vegna þeirra veiðifrjettir og aðra almenna, hlutlausa vitneskju.

Þá er sú hlið þessa máls, sem snýr að sjálfstæði þjóðarinnar. Jeg er ekki í minsta vafa um, að því getur stafað hætta af þessum málum. Það er víst, að okkar skip brjóta mest landhelgislögin, en það eru útlendingarnir, sem fyrir sektunum verða. Hvað skyldu þeir því halda um íslensku varðskipin, stjórnarvöldin og dómstólana? Vitanlega ekkert annað en að þetta sjeu alt þjónar togarafjelaganna íslensku. Það er því ekki hægt að gera landhelgisgæslunni íslensku annað betra verk, en ef hægt væri að koma því til leiðar, að okkar skip væru sektuð jafnoft og hin útlendu, í hlutfalli við raunveruleg brot. Og meðan það er ekki hægt, megum við stöðugt eiga von á meira og minna rökstuddum grun um það, að við leyfum hjer lögbrot okkar eigin skipum. Mjer er fullkunnugt um þennan grun, t. d. bæði frá Englendingum og Þjóðverjum, en það eru þær þjóðir, sem mestar fiskiveiðar stunda hjer við land. Umboðsmenn þessara þjóða hjer telja þetta svo gott sem sannað. Frv. þetta miðar auk annars að því, að hreinsa af þjóðinni þann blett, sem togarafjelögin sum hafa á hana sett með landhelgisveiðum sínum.

Þá tók þessi háttv. þm. nokkurar greinar til athugunar, og komst að þeirri niðurstöðu, að þær næðu ekki tilgangi sínum; væru of harðar, gengju of nærri mannlegri lögbrotanáttúru.

Til þess að skýra það fyrir háttv. þingdeild, hvort það mundi eins auðvelt að fremja lögbrot á þessum vettvangi hjer eftir eins og hingað til, ef frv. þetta verður samþykt, vil jeg fara um það nokkrum orðum til skýringar. Fyrst er gert ráð fyrir, að hvert skeyti til eða frá íslenskum veiðiskipum skuli frumritað á sjerstakt eyðublað, sem dómsmálaráðuneytið leggur til, og undirritað af þeim, sem ábyrgð ber á því, að viðlögðum drengskap, að ekkert í efni skeytisins geti orðið til þess, að hjálpa veiðiskipi til þess að brjóta landhelgislöggjöfina. Þessu drengskaparvottorði vill háttv. 2. þm. G.-K. komast hjá, en allir heiðarlegir útgerðarmenn og skipsfjórar munu telja sjer slíkt ljúft. Er því hjer ekki um annað erfiði að ræða en að hafa til nægilegt af eyðublöðum þessum. Og jeg treysti útgerðarstjórum Kveldúlfs til svo mikillar búmensku, að hafa altaf nóg af þeim. Jeg skal játa, að það var hart, dæmið, sem háttv. þm. tók, að verða að borga 15 þús. kr., ef t. d. „Skallagrímur“ strandaði, en hefði ekki hin fyrirskipuðu eyðublöð til þess að frumrita á skeytið um strandið. Það væri þó maklegt, ef hann strandaði við landhelgisbrot. (ÓTh: Skip stranda oftast innan landhelgislínu, án þess þó að vera að veiðum í landhelgi). Veit jeg það, en það hefir líka komið fyrir, að þau hafi strandað upp við fjörusanda, með vörpuna á eftir sjer.

Hvað snertir drengskaparvottorðið, þá fæ jeg ekki sjeð, að meira sje að skrifa undir það en drengskaparvottorð, sem menn verða að undirskrifa á pósthúsum, um að póstsendingar til manns innihaldi ekki annað en upp er gefið. Slík vottorð hefir þessi háttv. þm. kanske aldrei þurft að undirskrifa, því vel má vera, að hann fái sínar vörur á annan hátt. En það hafa bæði jeg og aðrir orðið að gera.

Einn mætur maður, sem jeg hefi átt tal um þetta mál við, taldi það eitt mundi nægjanlegt, að láta hlutaðeigendur gefa þetta drengskaparvottorð, af því að menn væru yfirleitt svo samviskusamir. En háttv. 2. þm. G.-K. dró það í efa, af því að mannlegt eðli væri býsna veikt. En setjum nú svo, að útgerðarmaður eða prókúrahafi hans hafi ekki svo mikinn drengskap, sem til er ætlast, og sendi skeyti, sem saknæmt er, samkvæmt lögum þessum, þá er þetta skeyti bókfært hjá loftskeytastöðinni og hlustað á það af varðskipunum. Kemur þetta framhjátökubarn því í ljós, þegar sjávarútvegsnefndir Alþingis fara að endurskoða skeytin. Í viðbót við þetta er lögð sú skylda á herðar loftskeytamanna og skipstjóra, að láta stjórnarráðinu í tje lykil að hverju því dulmáli, sem notað kannað vera í skeytasendingum milli útgerðarinnar og veiðiskipa hjer við land, eða milli íslenskra veiðiskipa innbyrðis. Þetta eru þeir skyldir að gera, vilji þeir ekki gera sig seka í glæpsamlegu athæfi. Alt þetta telur háttv. 2. þm. G.-K. fánýtt, og má vera, að svo sje, ef um mjög spilta menn er að ræða. En jeg hefi yfirleitt þá trú á útgerðarmönnum landsins; að þó þeir sjeu ekki beinlínis englar að siðgæði í þessum efnum, þá sjeu þeir ekki eins slæmir og hv. 2. þm. G.-K. vill vera láta. Í frv. þessu er þó gert ráð fyrir, að það geti komið fyrir, að útgerðarmaður hjer á landi eða skipstjóri á veiðiskipi misnoti loftskeytin í þeim tilgangi að fremja eða dylja landhelgisbrot. Er því fárið fram á, ef þetta kemur fyrir hvað eftir annað, að stjórnin gripi til þess úrræðis, sem talað er um í 5. gr. frv., að taka af þessum skipum óhindraðan rjett til loftskeytasendinga. Á stríðsmáli er þetta kallað að setja skipin á gráan lista. Það er, að öll skeyti, sem það sendir, eða til þess eru send, skuli vera undir sjerstöku eftirliti, þannig, að efni þeirra er athugað, og það eitt sent, sem skipið þarf að fá vitneskju um, eins og t. d. að góður markaður sje í Englandi o. s. frv. Þá mundi skeyti eins og t. d. „Fuglinn flaug til suðausturs“, sem einu sinni mun hafa átt að þýða: „Fylla fór til suðausturs“, ekki hafa verið sent. Erlendis er mikið eftirlit haft með öllum loftskeytasendingum, og jeg vona, að jeg móðgi háttv. 2. þm. G.-K. ekki, þó að jeg segi honum frá því, að enska loftskeytastjórnin hefir vanið bæði íslenska togara og skip Eimskipafjelagsins af því, að vera með óþarfa samtöl við Englandsstrendur. Skip þessi höfðu það fyrir vana, þegar þau voru á ferð í Norðursjónum, að tala saman sjer til skemtunar. Englendingar tóku svo skeytin og sendu þau hingað, Og bönnuðu þennan vaðal við Englandsstrendur. Þeir sögðust annað hafa að gera með loftið, en láta aðra nota það fyrir óþarfa málæði. Úr þessu hefir nú verið bætt. Landssímastjórnin hjer hefir lagt fyrir skipin að hætta nauðsynjalausum umræðum. Að þessu mun líka draga hjer, að skipum verði bannað að vera með óþarfa vaðal.

Því þarf ekki að lýsa hjer, hve erfitt það er fyrir varðskipin að nota loftskeytatækin, síðan sum íslensku skipin fengu miðunartæki. Mjer er sagt, að skip með þessum tækjum geti vitað, hvert varðskipin fari, hvort þau fari vestur eða austur, norður eða suður, ef nokkur fjarlægð er að ráði. Þetta sýnir líka, að það má ekki lofa varðskipunum að síma til Reykjavíkur t. d. 2–3 sinnum á dag, eins og nú á sjer stað, þar sem þau segja til sín með þessum skeytasendingum.