07.02.1928
Neðri deild: 16. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 267 í C-deild Alþingistíðinda. (1612)

69. mál, loftskeytanotkun veiðiskipa

Flm. (Sveinn Ólafsson):

Jeg get varla komist hjá því, að verða við ósk hv. 2. þm. G.-K., þegar hann mælist til þess, að jeg skýri þau orð, sem jeg ljet falla um hann í fyrri ræðu minni.

Þess vil jeg þó áður geta, að mjer virðast allar umræður um þetta frv. falla mjög í eina átt, nefnil. til stuðnings við það. Jafnvel hv. 2. þm. G.-K., sem helst hreyfir andmælum gegn því, hefir öðrum þræði látið falla hlýleg orð um málið. Þessar undirtektir allar met jeg sem vott eða fyrirboða um góðar lyktir þessa máls.

Jeg skal svo drepa á eina yfirlýsingu, sem gefin hefir verið í þessum umræðum, og eiginlega gæti hún nægt sem svar við fyrirspurninni. Það er yfirlýsing hv. 2. þm. G.-K. sjálfs, í fyrri ræðu hans, um það, að hann teldi tilgang frv. lofsverðan og góðan. Þakklæti mitt til hans, sem hann tekur svo sárt, að vefengt hefir verið, var einkum vegna þessara orða hans. Hinsvegar get jeg eigi gert að því, þó að einstakir hv. þm. kunni að hafa litið á orð mín eins og skop eða tvíræða vjefrjett. En ef hv. 2. þm. G.-K. vill álíta, að jeg hafi ekki talað í einlægni, þá má hann það. (ÓTh: Alls ekki!) Sannast að segja virðist mjer, að það hafi verið óþarfi fyrir hann að stökkva upp á nef sjer út af meinlausu spaugi um hólið frá mjer. Að lokum vil jeg lýsa ánægju minni yfir þeim góðu undirtektum, sem frv. hefir fengið, og virði jeg að vettugi öll smávægileg olnbogaskot til mín út af því.