07.02.1928
Neðri deild: 16. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í C-deild Alþingistíðinda. (1614)
69. mál, loftskeytanotkun veiðiskipa
Pjetur Ottesen:
Í raun og veru þarf jeg eigi miklu að svara hæstv. dómsmrh., enda mun oftar gefast tækifæri til þess, áður en skilist verður við landhelgismálin. Hann var að tala um, að ekki væri eins mikill kraftur í ræðu minni nú og áður. Það getur vel verið, en það á þá rót sína að rekja til þess, að jeg býst ekki við miklum árangri af því, fyrir umbætur á landhelgisgæslunni, þótt þetta frv. verði samþ., þótt jeg sje fús til að fylgja því og vinna að endurbótum á því, svo sem kostur er. En það er spá mín, að þegar frv. það, um aukna landhelgisgæslu, sem hv. Ed. hefir nú til meðferðar, kemur í þessa hv. deild, þá muni hæstv. dómsmrh. komast að raun um, hvort jeg hefi nokkuð slegið af kröfum mínum.
Þegar hæstv. ráðh. talar um kostnað við strandvarnirnar, og gerir mikið úr honum, þá gerir hann sjer ekki næga grein fyrir því, til hvers er að vinna. Kostnaðurinn við landhelgisgæsluna, — þó hann aukist mikið frá því sem er — er ekki nema örlítið brot af þeim hagsmunum, sem landið hefir af því, að landhelgin sje vel varin. Það er nú viðurkent, að „Þór“ sje mjög ófullkomið varðskip, en þó hefir hann komið að miklu liði.
Það er vitanlega alkunna, að mikið hefir þegar áunnist um endurbætur á landhelgisgæslunni frá því, sem áður var, enda þótt mjög mikið sje eftir, svo að vel sje.
Hæstv. dómsmrh. talaði um þátttöku Dana í landhelgisgæslunni, svo sem hún væri jafnfullkomin hinni innlendu. En það eru ýmsar ástæður, er jeg hefi áður gert grein fyrir, sem valda því, að Danir neyta sín ekkert svipað því við landhelgisgæslu hjer, sem íslensku landhelgigæsluskipin. Þá hefir til þessa brostið flest til þess. Er jeg reiðubúinn að endurtaka rökin fyrir því enn á ný, ef þess gerist þörf.
Hæstv. ráðh. taldi á misskilningi bygt það, sem jeg sagði um miðunaráhöldin og það, að með þeim gætu botnvörpungarnir altaf fundið, hvar varðskipanna væri að leita. Sagði hann, að þetta bygðist á því, hve oft stjórnarráðið hefði að undanförnu haft samband við skipin. En jeg vil benda honum á, að úr því er ekki hægt að draga, svo að neinu nemi, meðan skipin eru svona fá. Þegar kvartanir koma hvaðanæfa um landhelgisveiðar, þá sýnist óhæfilegt annað en að skýra varðskipunum frá því. Svo er ekki ósjaldan, sem gerð eru boð eftir þeim til að þeytast kringum landið í allskonar snatti. Vitanlega er þetta snatt varðskipanna hin hörmulegasta misbeiting á starfi þeirra, sem orðið getur, meðan landhelgisgæslan er ekki betri.
Jeg veik að þeim orðum hæstv. ráðh. í fyrri ræðu minni, að útlendingar hefðu rökstuddan grun um það, að þeir væru hjer ekki undir sömu lögum og meðhöndlan og innlendir menn. Hæstv. ráðh. dró nú úr þessum ummælum öllum, og vildi sveigja þau í þá átt, að um misskilning hefði verið að ræða hjá mjer. En jeg vil leggja áherslu á það, að í þessum grun geta útlendingar ekki fengið neina átyllu til að ásaka íslenskt rjettarfar.