08.02.1928
Neðri deild: 17. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í C-deild Alþingistíðinda. (1627)
74. mál, löggilding verslunarstaðar á Vattarnesi
Flm. (Sveinn Ólafsson):
Það er fátt eitt um þetta frv. að segja, umfram það, sem í grg. stendur. Frv. er flutt samkvæmt ósk búanda á Vattarnesi og næstu granna og til þess að verða vermönnum að liði, sem sækja þangað á sumrum. Skip mundu verða auðfengnari þangað, ef staðurinn væri löggiltur, því að skilyrði vátryggingarfjelaga torvelda oft skipaferðir til ólöggiltra hafna.
Nú stendur einnig svo sjerstaklega á, að töluvert af verðmætum húsum og öðrum mannvirkjum á að seljast þarna næsta vor, til lúkningar veðskuldum. En veðhæfi og verðmæti bygginga þessara mundi aukast mjög, ef svæðið væri löggildað og lóðarrjettindin gerð skýlaus. Er því veðhöfum og lánsstofnunum, sem þarna eiga hlut að full nauðsyn á löggildingunni.
Mál þessu lík hafa oft legið áður fyrir þinginu og gengið fram mótspyrnulaust. Vona jeg, að svo fari einnig um þetta mál. Það má að vísu segja, að löggilduð höfn, Eskifjörður, sje ekki langt frá þessum stað, en þó er sjóleið þar á milli um 16 mílufjórðungar og landleið miklu lengri, enda vermanna vegna mikil þægindi að hafa löggiltan verslunarstað í Vattarnesi.
Jeg skal ekki fjölyrða meira um þetta að sinni. Vona, að þessu frv. verði tekið vel og að það, að lokinni umr., verði látið ganga til allshn.