10.03.1928
Neðri deild: 44. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í B-deild Alþingistíðinda. (163)

1. mál, fjárlög 1929

Sigurður Eggerz:

Jeg á hjer eina brtt. á þskj. 435,VIII, sem að vísu er ekki ný, þar sem hún lá einnig fyrir við 2. umr. fjárlaganna. Talaði jeg þá fyrir henni, en tók hana því næst aftur til 3. umr. vegna tilmæla frá hæstv. forsrh. (TrÞ). Jeg skal ekki taka upp aftur nú það, sem jeg sagði þá, enda hefir verið talað fyrir þessari till. á þingi áður. En jeg vil þó benda á það, að vegalengdin frá Breiðabólsstað að Dalsmynni er 16 km., og sá örðugi kafli af leiðinni er aðeins 5 km. Ef þessi vegur er lagður, þá er þar með fengið vegasamband í Búðardal og Hvammssveit, og með lítilli lagfæringu út Fellsströndina að Staðarfelli. Sömuleiðis í Saurbæinn með lítilli fyrirhöfn. Ef þessi vegur frá Breiðabólsstað að Dalsmynni yrði lagður, myndi bráðlega svo að segja öll Dalasýsla komast í beint vegarsamband við Reykjavík. Með þessu væru opnaðir nýir möguleikar fyrir þetta hjerað, sem eingöngu er landbúnaðarhjerað og hefir öll skilyrði fyrir mikla framleiðslu: duglega bændur, lifandi af áhuga, og ágætt land til ræktunar. Og besta lyftistöngin fyrir margfalda framleiðslu eru samgöngubætur sem þessar. Þá mundu og verðmæti jarða þar aukast stórkostlega.

Sumum hefir komið til hugar að fara aðra leið: Leggja veginn um Laxárdal til Borðeyrar og koma honum þannig í samband við Holtavörðuveg. En sú leið frá Dalsmynni að Búðardal er talin að vera um 100 km., en vegurinn frá Dalsmynni til Búðardals 37 km. Væri því um 63 km. lengri ]eið að ræða. Sjá allir, um hve mikinn mismun hjer er að ræða. Ef Bröttubrekkuvegurinn verður lagður, stendur Dalasýsla líkt að vígi og Mýra- og Borgarfjarðarsýsla með að ná til Reykjavíkur, því þá er leiðin opnuð að Borgarnesi sem hafnarstað fyrir hjeraðið.

Jeg geri ráð fyrir því, að öllum hv. þdm. sje það ljóst, að þó hjer sje aðeins beðið um 10 þús. kr., þá er þetta stórt mál fyrir hjeraðið, sem hefir svo mjög verið vanrækt á undanförnum árum og sem hefir sýnt svo mikla þolinmæði, þótt það hafi verið sett á hakann.

Þar sem fje það, sem um er beðið, getur þýtt margfaldar fjárupphæðir fyrir hjeraðið, sem nýtur ávaxtanna af því, og landið í heild sinni jafnframt, þá er ekki rjett að vera of hógvær í slíkum kröfum. Jeg vona því, að háttv. deild sjái, að hjer er um mikið sanngirnismál að ræða. Og þó þessi fjárbeiðni væri vegin á vogaskálum móti hverri annari, sem hjer liggur fyrir, þá efast jeg um, að nokkur þeirra yrði þyngri á metunum en einmitt þessi.