16.02.1928
Neðri deild: 24. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 298 í C-deild Alþingistíðinda. (1647)
87. mál, bann á næturvinnu
Flm. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Mjer hafa ekki komið á óvart þær fullyrðingar, sem hjer hafa komið fram gegn þessu frv., og mun jeg nú sýna fram á það, á hve miklum rökum þær eru bygðar.
Hv. 2. þm. G.-K. sem er, eins og kunnugt er, einn af stóratvinnurekendum þessa bæjar, vill draga í efa, að frv. þetta sje borið fram eftir óskum verkamannanna sjálfra. Ef þessi hv. þm. hefði verið staddur á fundum verkamanna, þar sem þetta mál hefir verið rætt, mundi honum hafa gefist kostur á að sannfærast um, hvort svo er eða eigi. Jeg veit, að þessi hv. þm. hefir marga verkamenn í þjónustu sinni, en jeg leyfi mjer að efast um, að hann hafi kannað hug þeirra svo, að hann geti komið fram með slíkar fullyrðingar. (ÓTh: Það hefi jeg samt gert). Jeg endurtek, að jeg efast um, að sú fullyrðing sje rjett. Þetta mál er ekki borið fram vegna neinna látaláta í okkur flm., heldur í umboði verkamanna sjálfra, af óumflýjanlegri nauðsyn, til að vernda og tryggja heilsu þeirra gegn óhollustu þeirri, sem næturvinna hefir í för með sjer.
Þá mun jeg snúa mjer að þeirri hlið málsins, sem að útgerðinni snýr.
Því hefir verið haldið fram sem aðalástæðu gegn frv., að það yrði til að togarar tefðust oft og tíðum um tvær nætur við að losa afla sinn, og frv. yrði þannig til að draga úr afla þeirra. Jeg leyfi mjer að fullyrða, þar sem jeg er svo kunnugur við Reykjavíkurhöfn, að jeg veit þess mörg dæmi, að skip hafa legið yfir nóttina, enda þótt uppskipun afla hafi verið lokið um kveldið. Jeg skal koma með dæmi, sem sýnir hvílíkur misskilningur það er, að togarar tapi tveim nóttum við það, þótt uppskipun fari fram að degi til, eins og frv. fer fram á. Togari siglir austan af Selvogsmiðum kl. 5 að morgni, og kemur til Reykjavíkur kl. 1–2 eftir hádegi. Afgreiðsla í höfn tekur 6–8 tíma, og er því lokið kl. 8–10 síðdegis. Togarinn ætti því að vera kominn austur á Selvogsmið aftur kl. 6–7 næsta morgun. Í langflestum tilfellum er það aðeins ein nótt, sem tapast. Togarinn getur ávalt sent boð á undan sjer með loftskeytum, hvenær hans er von, svo að alt sje til taks, að taka á móti honum. Komið getur það líka fyrir, að skip komist ekki að, vegna þrengsla á höfninni, og er því vitanlega ómögulegt að synda fyrir, að nótt og nótt tapist við afgreiðslu skipanna, fyrir þær sakir.
Þetta virðist mjer aðalþungamiðjan í rökum hv. 2. þm. G.-K. Get jeg ekki sjeð, að þær röksemdir hafi við neitt að styðjast.
Hv. þm. sagði, að ef útgerðarmenn vildu borga hærra kaup fyrir næturvinnu en ella, væri rangt, að meina mönnum að njóta þess kaups. Jeg veit að vísu, að til eru þeir menn, sem vilja alt til kaupsins vinna, en fleiri munu hinir, sem vinna næturvinnu vegna þess, að þeir verða að hafa öll spjót úti til að framfleyta sjer og sínum, og mundi að öðrum kosti ekki láta sjer til hugar koma að slægjast eftir þessari vinnu, og svo það, að ef þeir neituðu að vinna, gætu þeir átt á hættu að fá ekki vinnu framar. Hv. þm. sagði, að úr nægu fólki væri að velja. Þetta er satt, því þótt unnið sje við öll skip, sem að hafnarbökkunum komast, stendur þó jafnan hópur atvinnulausra manna hjá. Hjer er því um mikilvægt skipulagsatriði að ræða, sem miðar að því, að skifta vinnunni jafnara meðal verkamanna, með því að undanskilja vinnu að nóttu til, er sömu mennirnir sitja að og að deginum unnu. Þessi hlið frv. er vitanlega ákaflega mikilsverð, en hitt er þó aðaltilgangur þess, að vernda líf manna og heilbrigði, og því er það fyrst og fremst nauðsynlegt frá heilsufræðilegu sjónarmiði.
Hv. þm. vitnar í útlönd, og segir, að skip þau, sem þar eru afgreidd, sjeu verslunarskip, en eigi fiskiveiðaskip. (ÓTh: Að mestu leyti). Honum ætti þó að vera kunnugt um afgreiðslu veiðiskipanna í hafnarbæjunum, þar sem afgreiðsla hefst ekki fyr en kl. 4 að morgni, að jafnaði, og menn vinna ekki nema 8–10 tíma í einu við afgreiðsluna, en aðrir menn starfa að útskipun kola og annars, er skipið þarf með.
Hv. þm. fetti ennfremur fingur út í það, sem jeg sagði um útlit hjerlendra verkamanna. Það er einmitt þyngsti dómurinn yfir atvinnurekendum, hvernig verkamenn hjer verða að líta út, vegna of lágs kaupgjalds og ónógrar vinnu.
Jeg þykist vita, að hv. deild sje það ljóst, þrátt fyrir þau andmæli, sem fram hafa komið, að þetta mál sje svo vaxið, að það eigi að fara til nefndar; vænti jeg að hún komist að þeirri niðurstöðu, að frv. eigi að verða að lögum.