16.02.1928
Neðri deild: 24. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í C-deild Alþingistíðinda. (1651)
87. mál, bann á næturvinnu
Flm. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Jeg verð að svara örfáum orðum hv. 3. þm. Reykv. um dæmið, sem jeg tók, og mjer skildist að honum fyndist rangt. Það er eiginlega engin regla fyrir því, hvenær menn fara austan af Selvogsgrunni; það er lagt af stað á öllum tímum sólarhringsins. En dæmið, sem jeg tók, sannaði, að ef menn vildu losna við að vera nema eina nótt frá veiðum, þá gætu þeir hagað þessu þannig til. Að öðru leyti svara jeg ekki ræðu þessa hv. þm.
Þá er hv. 2. þm. G.-K. Hann hefir leitast við að hrekja sumt af því, sem jeg hjelt fram, eins og það, að skipin lægju ekki hjer í höfnum. Jeg hefi því miður enga skýrslu um þetta, en sú skýrsla er hjá hafnarskrifstofunni, hvenær skipin fara og koma, en sennilega er engin skýrsla um, hvenær afgreiðslu þeirra er lokið. En jeg hefi því miður sjeð þess glögg dæmi, að skipin hafa ekki altaf flýtt sjer úr höfn, þegar afgreiðslu var lokið, og hefi jeg ekki orðið var við, að viðgerðir orsökuðu töfina, nema í örfáum tilfellum; það er oftast á valdi skipstjóranna sjálfra, hvort þeir sigla samstundis úr höfn eða ekki. Þeir vita manna best, hvort nokkurt veiðitap hlýst af því eða ekki.
Hann sagði ennfremur, að þrengsli við höfnina útheimti næturvinnu. Jeg var að sanna, með dæminu um þrengsli í höfninni, að ómögulegt væri að fullyrða neitt um það, að fyrir gæti komið, að skip gætu tafist lengur en eina nótt frá veiðum á Selvogsgrunni; en þó þau tefðust á ýmsum tímum hjer á höfninni, er ekki altaf þar með sagt, að þau geti komist að að nóttunni frekar fyrir það. Því að bæði kolaskip og saltskip, sem liggja við hafnarbakkann óafgreidd og ekki er unnið við að nóttu til, eru ekki hreyfð frá hafnarbökkunum fyr en þau eru að fullu affermd eða fermd.
Hitt hefir komið fyrir, ef skip hafa komið síðla dags, að afgreiðsla þeirra hefir haldið óslitið áfram, þar til henni er lokið.
Það er ábyggileg reynsla, að þeir útgerðarmenn, sem ekki hafa látið afgreiða að nóttu til, sökum dýrari vinnu, þeir hafa yfirleitt ekki borið minna frá borði hvað afla snertir. Hv. þm. áleit, að hann gerði verkamönnum greiða með næturvinnu, þar sem kaupið væri hærra. Slíkur greiði hefir orðið mörgum alldýr, og flestir telja það ekki með beinum höppum, að verða að vinna dauðþreyttir, allavega til reika, í allskonar veðri, fyrir utan margskonar óþægindi önnur, sem því fylgir, þótt borgað sje nokkrum aurum hærra fyrir.
Svo vildi hv. þm. sanna, að erlendis byrjuðu menn að vinna klukkan 2 að nóttu. Jeg verð að fræða hv. þm. um það, að sú regla er almennari, að byrja klukkan 4. Og jeg ætla að bæta því við, að sjeu skip ekki búin að fá afgreiðslu klukkan 12, þá er ekki unnið meira þann dag. Það þýðir ekkert að koma í breska höfn upp á það, að fá afgreiðslu á öllum tímum sólarhringsins. Þó að menn byrji klukkan 2, sem mun eiga sjer stað í Hull, þá vinna þeir ekki, þrátt fyrir það, nema 8–9 tíma; það er álitinn alveg fullkominn vinnutími þar í landi. Hjer vinna menn á meðan þeir geta staðið á fótunum, og sýnast atvinnurekendur kunna því ekki illa. Slíkt er hættulegt öllum mönnum, og ekki síst gömlum mönnum og lasburða og heilsuveilum, og skaði fyrir þjóðfjelagið, ef það á að haldast uppi.
Svo vildi hann vitna í kaupgjaldið. En kaupgjaldið er of lágt, miðað við þarfir manna og þá vinnu, sem menn inna af hendi yfirleitt. En hitt er annað mál, að það er ósannað, hvort útgerðin getur borgað hærra kaup eða ekki.
Jeg held það hafi verið hv. 3. þm. Reykv., sem drap á það, að við jafnaðarmenn stuðluðum að því að draga fólkið úr sveitinni til kaupstaðanna. En sannleikurinn er sá, að þótt allmikill fjöldi fólks hafi verið atvinnulaust í þessum bæ, hefir verið auglýst út á landsbygðina eftir fólki, af útgerðarmönnum, og það jafnvel af þeim, sem eiga sæti í þessari hv. deild. Jeg get fært þessum orðum mínum stað, ef hv. þingmenn vilja; sönnunargögnin liggja fyrir hendi. Þetta gilti jafnt um karla og konur. Svo að það eru ekki við jafnaðarmenn, sem köllum á fólkið hingað, heldur útgerðarmenn sjálfir.
Jeg verð að segja nokkur orð til hv. þm. V.-Sk. Jeg held það sje meira af því, að hann hefir ekki sett sig inn í þetta mál, að hann legst á móti því, en það, að hann vilji ekki unna verkamönnum rjettar síns í þessum efnum. Það er ekki nauðsyn, að setja slíka takmörkun sem þessa, nema mikil brögð sjeu að því, að mönnum sje ofþjakað í þessu efni. Jeg leyfi mjer að staðhæfa, að hvergi á landinu sje gert eins mikið að því að vetrarlagi að láta menn vinna að nóttu til, eins og í þessum tveimur bæjum, og þá náttúrlega í sambandi við stórútgerðina. Nú var það svo, að hvíldardagshelgin var ekki heldur að neinu virt, og varð að ganga að því með oddi og egg, að fá lögfest bann gegn vinnu yfir þann tíma, sem messugerð fer fram. Einnig þurftu lög að koma til, svo að verkamenn fengi frið á stórhátíðum.
Ágengnin gagnvart helgidögum og næturhvíld er mest á þessum tveimur stöðum.