10.03.1928
Neðri deild: 44. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 796 í B-deild Alþingistíðinda. (166)
1. mál, fjárlög 1929
Lárus Helgason:
Eftir að jeg hafði litið á álit samgmn., var jeg að hugsa um að kveðja mjer hljóðs. En jeg var nærri hættur við það, vegna þess hve fátt var af þm. í deildinni. En nú eru þeir orðnir fleiri, og mun jeg því segja nokkur orð.
Jeg get tekið undir það með háttv. þm. Borgf. (PO), að mjer virðist eins og honum, að hv. samgmn. hafi mistekist að útbúa þessi plögg sín og að ástæður hennar fyrir breytingum þeim, er hún hefir gert, sjeu ljettvægar. Eins og hv. þm. Borgf. tók fram, þá er sú ástæða mjög óviðfeldin, sem frsm. nefndarinnar, háttv. þm. N.-Ísf. (JAJ), bar fram fyrir því, að lækkaður hefði verið styrkurinn á sumum bátunum, sú, að útgerðarkostnaðurinn hefði lækkað, þar sem sumir bátarnir halda fullum styrk. Jeg er nú ekki víða kunnugur staðháttum kringum landið, en jeg þekki þó aðstöðu eins bátsins vel, sem sje „Skaftfellings“. Jeg hafði mælst til þess við hv. nefnd, að hún legði til, að þessi bátur yrði tekinn út úr tölu flóabáta vegna sinnar sjerstöku aðstöðu. Hann fer ekki um firði og flóa, heldur meðfram brimströndinni, þar sem allra erfiðast er um flutninga á öllu landinu. Hann annast flutninga í Vesturskaftafellssýslu allri, nokkru af Austur-Skaftafellssýslu og talsvert fyrir Rangárvallasýslu líka, og sum árin til Eyrarbakka að nokkru. Þetta er hin brimasama og hafnlausa Strönd Suðurlandsundirlendisins, og allir hljóta að viðurkenna, að þarna er erfiðara um flutninga en á nokkrum stað öðrum á landinu. Það er ómögulegt fyrir menn á þessu svæði að hafa nokkur veruleg not af öðrum skipum, svo sem Strandferðaskipum ríkisins. Þessi bátur verður tímum saman að liggja í Vestmannaeyjum og bíða byrjar. Ef hann hefði betri lendingarstaði við að búa en hann hefir, þá gæti hann farið aðrar ferðir til að afla tekna, en hann verður alt árið að vera bundinn við að fullnægja þörfum þessara hjeraða sem unt er. Enda hefir svo farið, þrátt fyrir talsverðan styrk, að hagur bátsins hefir farið síversnandi. Síðastliðið ár varð auk þess áð skifta um vjel í honum, og kostaði það 20–30 þús. kr. Þetta alt finst mjer, að háttv. samgmn. ætti að athuga, þar sem henni var gert þetta kunnugt. Jeg get ekki betur sjeð en að þótt þörf sje á að bæta við báta, eins og í Eyjafirði, þá sje ekki rjett að grípa til þess að taka styrk af þessum bát eða öðrum slíkum og bæta á aðra. Nei, rökrjett afleiðing af því, ef bætt er við báta, er, að þá verður um leið að bæta við styrkinn til flóabátanna. Það þýðir ekki að segja við heil hjeruð: Þið fáið ekki meira en þetta. Hvaða sanngirni er í slíku? Þau eiga heimtingu á að fá sanngjarnan styrk til samgöngubóta, þó afskekt sjeu, og síst að draga úr honum fyrir það. Að finna upp á slíku, að lækka styrk til báts, sem á við þetta að stríða, sem jeg nú hefi lýst um „Skaftfelling“, og sem öllum er kunnugt, að er rjett, það hygg jeg verði erfitt fyrir nefndina að finna nokkur rök fyrir. Háttv. nefnd hefir bent á, að senda beri ferðaáætlanir bátanna til stjórnarráðsins og gjaldskrá. Það er mikið rjett. En hvað þýðir að senda áætlanir báts eins og „Skaftfellings“, sem verður að grípa hvert tækifæri, þegar veður og sjór ekki hamla? Þetta var þó gert fyrsta starfsár bátsins, en hætt við það í samráði við stjórnarráðið. Áætlanir hafa ekkert að þýða á stað eins og þarna, og okkur dettur ekki einu sinni í hug að búa til neina slíka áætlun.
Jeg vænti annars, að hv. nefnd geti gefið betri upplýsingar en hún hefir þegar gefið um þetta, hvað hún ætlast fyrir í þessu máli, og lýk máli mínu.