21.02.1928
Neðri deild: 28. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 352 í C-deild Alþingistíðinda. (1661)
89. mál, einkasala á saltfisk
Flm. (Haraldur Guðmundsson):
Jeg vil fyrst víkja nokkrum orðum að hv. 3. þm. Reykv. Hann sagði, að óforsvaranlegt væri að bera fram frv. um þetta, án þess að gera sjer ljóst, hvern árangur það bæri. Mjer er nú ekki vel ljóst, hvað hv. þm. á við með þessu. Hjer hefir engin önnur einkasala verið á þessu sviði, nema þau ár, sem útflutningsnefnd starfaði. Við flm. mættum því vera í meira lagi spámannlega vaxnir, ef við ættum að geta sagt fyrir nákvæmlega um árangur af frv. út í ystu æsar.
Það, sem við gerum hjer, er að benda á annmarka þess ástands, sem nú er, og þær breytingar, sem við teljum til bóta. Sannanirnar færir reynslan okkur, ef frv. verður að lögum. Mjer heyrðist á honum og hv. þm. N.-Ísf., að þeir teldu, að landsmenn hefðu haft gróða af Coplandshringnum, þótt salan tækist svo sem kunnugt er. Hv. 3. þm. Reykv. sagði, að hringurinn hefði ætlað sjer að hagnast á sölunni, og hv. þm. N.-Ísf., að hann hefði sett verðið of hátt. (JAJ: Það hefi jeg ekki sagt.) Jeg skrifaði þessi ummæli hv. þm. hjá mjer. — Afleiðingin varð auðvitað sú, að kaupendur leituðu þangað, sem þeir fengu vöruna með lægra verði. Hefði verðið verið sanngjarnt í upphafi, hefði verðlækkunin orðið miklu minni. Verðlækkunin stafaði af „spekulation“, hringurinn ætlaði sjer óhæfilega álagningu, og því fór sem fór. Þetta er viðurkent af báðum þessum hv. þm., og tapið lenti fyrst og fremst á bönkunum, síðan á landsmönnum.
Hv. 3. þm. Reykv. gat þess, að nauðsynlegir milliliðir væru nauðsynlegir, og er það vitaskuld rjett. Veit jeg ekki til, að nokkur maður hafi mótmælt því. Ríkiseinkasölunni er einmitt ætlað að verða hinn nauðsynlegi milliliður milli framleiðenda hjer og stórkaupmanna og neytenda á Spáni. Jeg geri ráð fyrir, að í upphafi verði einkasalan að skifta við stórkaupmennina, en ekki er ótrúlegt, að með tíð og tíma megi spara þann millilið.
Sami hv. þm. sagðist ekki treysta nokkrum núlifandi Íslendingi til að veita þessu fyrirtæki svo góða forstöðu, að ástandið yrði betra en nú er. Jeg lít nokkuð öðrum augum á þetta, því að jeg hygg, að hverjum manni, sem fæst við fiskverslun, sje treystandi til að gera það betur með einkasölu en frjálsri samkeppni. Svo miklu auðveldara er að yfirstíga örðugleikana fyrir einkasölu en samkeppnisverslun. Það er bein og rökrjett afleiðing af samkeppninni, að hún hlýtur að lækka verð vörunnar, er hver framleiðandinn býður niður fyrir annan, til að koma út sinni vöru.
Jeg ætla, að hv. þm. V.-Ísf. færi ekki rjett með eitt atriði. Hann kvað mig hafa sagt, að ekkert hafi verið gert á undanförnum árum til að auka markaðinn. Það voru ekki mín orð. Jeg talaði einmitt um þær ferðir, sem farnar hefðu verið í þessu skyni, en sagði, að þær hefðu engan árangur borið, svo að sýnilegt væri. Jeg gat þess og, að markaðurinn á Spáni hefði aukist, þannig, að við flyttum þangað meiri fisk nú en áður, og tók jeg fram hlutföllin í ræðu minni. — Sami hv. þm. sagði, að jeg hefði talað um, að engin trygging hafi fengist fyrir auknum markaði á Spáni með því að veita undanþáguna frá bannlögunum. Jeg er nú satt að segja þeirrar skoðunar, en samt sagði jeg það ekki í ræðu minni, heldur aðeins, að mjer þættu þessar tryggingar lítils virði. — Hv. þm. færði það sínu máli til sönnunar, hvað Norðmenn og aðrir keppinautar okkar segðu um dugnað okkar við að afla markaða. En jeg hygg, að orð þau, er hann vitnar til, sjeu mest sögð til brýningar keppinautunum. Víst er um það, að innflutningur á fiski frá Færeyjum og Noregi til Spánar hefir aukist á síðari árum.
Hv. þm. vildi viðurkenna mest af því, sem jeg sagði um agnúana á fiskversluninni og hafði eftir Gunnari Egilssyni, nema það, að sumir bæir væru ýmsa tíma ársins fisklausir, þótt á öðrum stöðum væri meira en nægur fiskur. Að hv. þm. N.-Ísf. alveg ólöstuðum verð jeg að segja, að jeg trúi erindrekanum eins vel um þetta, og ef menn efast um, að jeg hafi rjett eftir, geta þeir sjálfir gætt í skýrsluna. Vitaskuld á þetta aðeins við þá staði, þar sem íslenskur fiskur er seldur. — Hv. þm. segir, að ekki sje um að ræða nema 4 eða 5 innflutningshafnir fyrir íslenskan fisk á Suður-Spáni. þetta kann rjett að vera, en er þá ekki unt að breyta þessu? Englendingar hafa t. d. mikið um það ritað, að best væri að geyma fiskinn sem lengst í Englandi og senda hann með smærri skipum og á fleiri hafnir í Spáni. Mundi ekki sama mega segja um fiskinn frá okkur.
Um umboðssöluna sagði hv. þm., að hún væri alveg úr sögunni. Jeg viðurkenni, að hún hefur mjög mikið minkað, en þar fyrir er hún enganveginn úr sögunni. Enda var það viðurkent af hv. þm. sjálfum, að síðari hluta ársins sem leið hafi verið send a. m. k. 4 þús. skpd. í umboðssölu. En þess ber að gæta, að það ár var óvenjulega greið sala, og auðvitað selja menn heldur fiskinn, þegar það er hægt, við góðu verði, en að láta hann í umboðssölu. En því miður er altaf mikil hætta á því, að hvenær sem illa gengur með fisksöluna, freistist menn til að senda fiskinn í umboðssölu. Á þessu er auðvitað engin hætta, þegar vel gengur. En fyrir þetta verður aldrei bygt, meðan útflytjendurnir eru margir og keppa hverir við aðra. Umboðssalan kemur altaf aftur, ef harðnar í ári.
Ennfremur sagði hv. þm., að stórkaupmennirnir á Spáni hefðu sömu hagsmuna að gæta eins og við. Þetta er ekki nema hálfur sannleikur og tæplega það. Auðvitað hafa þeir þeirra hagsmuna að gæta, að verðið sje sem hæst til neytendanna, en jafnframt vilja þeir auðvitað sjálfir gjalda sem allra minst fyrir vöruna.
Eitt atriði í ræðu þessa hv. þm. hygg jeg að sje veigamest af þeim mótmælum, sem fram hafa komið gegn frv. það er, að innflytjendur á Spáni mundu verða slíku fyrirkomulagi óvinveittir. Jeg býst við, að þetta sje rjett. En það væri rjett fyrir hv. deild að gera sjer grein fyrir, af hverju þetta stafar. Það er af því, að þeir búast ekki við eins hagfeldum kaupum, ef einkasalan kemst á. Auðvitað stafar það ekki af neinu öðru. þeir búast ekki við, að Íslendingar nái eins háu verði í samkeppni eins og með samvinnu. — Þetta hefir líka sannast af reynslunni. Tilraunir þær, sem hjer hafa verið gerðar til að ná fisksölunni á eina hönd, hafa átt litlum vinsældum að fagna á Spáni. En aðstaða þeirra, sem þær tilraunir hafa gert, hefir einnig verið miklu lakari heldur en aðstaða einkasölunnar yrði. Því að fyrir utan fiskhringinn og samlagið 1926 stóðu margir keppinautar, sem einnig höfðu íslenskan fisk á boðstólum. Var þá hægt að kaupa hann fyrst, en bíða með að versla við hringina. En fyrir utan einkasöluna yrði ísl. fisk hvergi að fá. E. t. v. mundu kaupmennirnir þá snúa sjer til Færeyinga, Norðmanna og Englendinga um fisk frá þeim. En það er áreiðanlegt, að neytendurnir vilja helst íslenskan fisk, þeir, sem honum eru orðnir vanir, og eftir því hygg jeg, að kaupmenn á Spáni verði að laga sig mest. Enda sönnuðu eigin orð hv. þm. þetta. Hann sagði, að þegar útflutningsnefndin frá stríðsárunum var að leysast upp, hefðu Spánverjar heldur viljað versla við kaupmenn heldur en hana. En þetta var ekki fyr en nefndin var að leysast upp. Meðan ekki var í annað hús að vernda, þá sneru Spánverjar sjer ætíð til hennar. En auðvitað sáu þeir sjer hag að því að kveða niður þessa einkasölu svo fljótt sem þeir gátu. Samkeppni okkar er þeim líkleg til gróða.
Þessi hv. þm. sagði enn, að síðan 1918 mundu allir, sem fengist hafa við fisksölu, heldur hafa halla af henni. Jeg get ekki vel um þetta deilt, þar sem jeg hefi ekki haft færi á að sjá reikninga fiskkaupmanna. (JAJ: það má spyrja bankana!) Þeir segja mjer nú ekki alla hluti, bankarnir, þótt þeir kunni að vera liðlegri við suma aðra. En undarlegt má það kallast, að þeir, sem búnir eru að bera hitann og þungann og tapið í meira en 9 ár, halda stöðugt áfram. Mjer finst sannast að segja býsna einfaldlegt að halda slíku fram; jeg vona að hv. þm. fyrirgefi, að jeg neyðist til að nota þau orð. Ef fiskkaupmenn hefðu í tug ára rekið verslunina með sífeldu tapi, hvernig gæti þá annað átt sjer stað heldur en það, að þeir yrðu manna fyrstir til að heimta breytingu á sölufyrirkomulaginu eða hætta með öllu. Sennilega hafa þeir að minsta kosti einhverja von um að hætta að tapa áður en lýkur. Jeg hefi enga trú á því, að útlendingar gerist til þess ár eftir ár að borga okkur meira fyrir fiskinn en þeir fá fyrir hann. Slík brjóstgæði get jeg ekki ætlað þeim. Okkur Íslendingum væri heldur ekki vansalaust að þiggja slíkar ölmusugjafir.