17.03.1928
Neðri deild: 50. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 381 í C-deild Alþingistíðinda. (1675)

162. mál, sauðfjárbaðanir

Hákon Kristófersson:

Fyrir nokkrum dögum snjeri jeg þeirri málaleitun til hæstv. foseta, að hann vildi ljá mjer lið sitt til þess að dregið yrði fram á dagskrá frv. það um sauðfjárbaðanir, sem jeg hefi borið fram. Nú hefir það legið lengi hjá landbn., og ekki virðist bóla neitt á, að nefndin ætli að fara að skila því frá sjer. Hæstv. forseti gaf mjer það svar, að að þrem dögum liðnum mundi málið koma á dagskrá. En nú eru tvisvar sinnum þrír dagar liðnir síðan; en af því að jeg fylgi ekki þessu máli með neinni frekju, hefi jeg látið mjer líka þetta sæmilega. En jeg vil þó enn einu sinni beina þeirri ósk til hæstv. forseta, að hann án frekari dráttar sjái sjer fært að taka málið fyrir, sem sje á næsta fundi.