18.02.1928
Neðri deild: 26. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í C-deild Alþingistíðinda. (1679)

104. mál, greiðsla verkkaups

Flm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Með lögunum í fyrra um viðauka við lögin frá 1902 um greiðslu verkkaups, viðurkendi Alþingi nauðsynlegt að bæta úr þeim ágöllum, sem. verið höfðu um reglubundna kaupgreiðslu til verkafólks. Mátti það því allmikil rjettarbót heita, frá því sem áður var, að verkafólk gat framvegis fengið kaup sitt greitt vikulega.

Önnur rjettarbót og ekki minni felst í þessu frv., þar sem verkafólki er heimilt að fara í mál út af kaupi sínu, og það án þess að baka sjer málskostnað. Þessar upphæðir hafa stundum verið svo lágar, að ekki hefir borgað sig að leita aðstoðar dómstólanna, vegna málskostnaðarins, sem fylgdi því, að ná rjetti sínum. Enda er mjer kunnugt um, að margir hafa gefið eftir kröfur sínar einmitt af þessum ástæðum. Og þó að upphæðirnar sjeu oft lágar, sem ágreiningur ris út af, getur þó fátæka verkamenn munað verulega um þær. Þess vegna endurtek jeg það, að fyrir fátæka menn er þessi rjettarbót síst minna virði en sú, að fá kaup sitt greitt vikulega.

Frv., sem varð að lögum í fyrra, liggur nú fyrir í þeirri breyttu mynd, að sjómennirnir eru teknir með, sömuleiðis vegavinnumenn, bifreiðastjórar og fólk, sem vinnur við allskonar síldarvinnu, og iðnaðarmenn og konur, sem vinna við iðnað. Þá er bætt við einni gr. í frv. frá því í fyrra, en að öðru leyti er það samhljóða því, sem það þá var fram borið.

Jeg vænti nú, eins og Alþingi tók í þetta mál í fyrra, að það fái að þessu sinni góða og skjóta afgreiðslu, og að það verði frv. ekki að falli, þó að það sje látið ná til fleiri manna en áður. Jeg vænti líka, að þeir atvinnurekendur, sem sæti eiga í þessari hv. deild, geti fallist á frv., enda munu þeir fylgja þeirri reglu að greiða verkafólki kaup sitt vikulega, sem í landi vinnur.

Þar sem gert er ráð fyrir, að umboðsmenn geti tekið kaupið, þá hafði jeg aðallega í huga konur giftra manna, einkum þó sjómanna, sem vitanlegt er um, að oftast eru fjarverandi, og þá ekki nema eðlilegt, að konur þeirra þurfi á peningum að halda og þær því geti krafið um kaup manna sinna. Annars mun sjómönnum greitt kaupið ýmist á mánaðarfresti eða kanske sjaldnar. En að sjálfsögðu hentugra fyrir heimilið, að fá það vikulega greitt.

Jeg sje ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um frv. Málið liggur ljóst fyrir, og eins og jeg tók fram áður, vænti jeg, að því verði vel tekið af hv. deild. Jeg óska svo, að málinu verði vísað til 2. umr. og allshn.