10.03.1928
Neðri deild: 44. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 801 í B-deild Alþingistíðinda. (168)

1. mál, fjárlög 1929

Ólafur Thors:

Hv. þm. Borgf. (PO) gerðist til að andmæla till. þeirri, sem hv. 3. þm. Reykv. (JÓl) og fleiri flytja hjer um 4000 kr. styrk til Páls Stefánssonar á Ásólfsstöðum til þess að reisa gistihús. Mjer kom það nú í sjálfu sjer ekki á óvart, þó að hann andmælti þessu, því að hann er vanur að leggjast fast á móti þeim greiðslum úr ríkissjóði, sem hann telur óþarfar. Í rauninni er ekkert við því að segja. Hinir eru nógu margir, sem ekki gæta meira en svo hófs. Mjer kom það sem sagt ekki á óvart, þótt þessi hv. þm. (PO) hefði á móti till., en mjer komu á óvart þær ástæður, sem hann færði fram gegn till. Háttv. þm. var að tala um afdalabæi og blandaði þar ólíku saman. Að vísu er það mjög nauðsynlegt, að endurbygðir sjeu hrörlegir sveitabæir, bæði í afdölum og annarsstaðar. En jafnt í slíkum afdalabæjum, og ekki síður, er tekið vel á móti gestum, þá sjaldan þá ber að garði. Það er nefnilega hægt þar að afsala sjer lífsþægindum til þeirra, sem koma, af því að það kemur svo sjaldan fyrir. Hitt liggur í augum uppi, að það er fjarstæða, úr því að menn haldast við æfilangt í þessum hrörlegu bæjum, að halda, að nokkur lífshætta sje því samfara að vera þar nætursakir. Þá taldi hv. þm. þetta óþarfa kostnað vegna gesta; þeir gætu haft með sjer tjöld. Það mundi nú lítt stoða að skipa þeim slíkt. Hitt væri öruggara fyrir hv. þm., að þurka Þjórsá, fela Þjórsárdalinn o. s. frv. Hinsvegar er ekki hjer um það að ræða, eins og hv. þm. vildi vera láta, að byggja yfir útlendan ferðamannastraum, heldur hitt, að byggja yfir íslenskan þjóðarsóma með því að sjá svo um, að ekki þurfi að úthýsa innlendum og útlendum gestum. Hv. þm. veit vel, að það er ekki á færi fátæks bónda að halda uppi þjóðarsómanum í þessu efni, og jeg vona, að hann, sem sjálfur er höfðingi, meti nú íslenska höfðingslund og fylgi okkur að máli um þessa tillögu.