18.02.1928
Neðri deild: 26. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í C-deild Alþingistíðinda. (1681)
104. mál, greiðsla verkkaups
Jóhann Jósefsson:
Á þinginu í fyrra voru afgreidd lög um þetta, eins og hv. flm. benti á. Jeg hafði þá orð á því í allshn. hv. Ed. við þáverandi hv. flm. þess, að jeg kynni illa við niðurlag 1. gr. frv. Hann gaf mjer þá sína skýringu á þessu atriði, en af því að það var gert í einkasamtali, vil jeg ekki fara frekar út í það nú.
En af því að jeg sje, að þetta niðurlagsákvæði 1. gr. frv. stendur ennþá óbreytt, þá vildi jeg leyfa mjer að skjóta því til þeirrar nefndar, sem málið fær, hvort hún muni ekki sjá sjer fært að breyta þessu. Jeg get ekki neitað því, að mjer finst óviðkunnanlegt, að gert sje upp á milli þess, hvort vinnan fari fram í sveit eða við sjó.
Í niðurlagi 1. gr. stendur, að undanþegnir kaupgreiðslu vikulega sjeu þeir, sem vinna í sveit og hafa auk kaupsins húsnæði og fæði. Nú tíðkast þetta líka við sjóinn, að menn fá fæði og húsnæði sem hluta kaupsins. Þess vegna sje jeg ekki ástæðu til að gera upp á milli sveita- og sjávarmanna í þessu efni, þar sem um sömu ráðningarkjör er að ræða.