18.02.1928
Neðri deild: 26. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í C-deild Alþingistíðinda. (1686)

104. mál, greiðsla verkkaups

Flm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Jeg skal fyrst svara hv. þm. Barð., sem talaði um, að lögin mættu ekki ná til manna; sem ráðnir eru upp á aflahlut. Fyrirkomulagið um aflahlut er aðallega tvennskonar, að útgerðarmaður ráði algerlega sölunni — og það er það venjulega — og að hlutarmaður ráði henni með honum, sem er mjög sjaldgæft. En ef hlutarmaður ræður algerlega hlut sínum sjálfur, þá horfir málið auðvitað alt öðruvísi við.

Það má vel vera, að þetta sje ekki nægilega skýrt og vel tekið fram í greininni, en það má laga undir meðferð málsins í nefnd. (HK: Salan er sameiginleg!) Það getur verið, að það tíðkist enn sumstaðar í smáútgerð, þar sem árabátar eru, að hlutarmenn ráði hlut sínum, en venjulega er ekki skift í fjöru, heldur á vog, og þá að vertíð lokinni, eða þegar fiskurinn er seldur. En hv. þm. Barð. þekkir það vel frá þilskipaútgerðinni, sem einmitt hefir, verið rekin í stórum stíl í hans kjördæmi, að þar tíðkast aflahlutur, hálfdrættið, og þar væri áreiðanlega ekki vanþörf á að koma á vikulegum greiðslum. (HH: Það er ómögulegt að koma því við.) Ja, jeg vil benda hv. þm. á, að það hefði farið öðruvísi á Bíldudal og Þingeyri, ef vikulegar greiðslur hefðu átt sjer stað. Jeg býst við, að ástandið væri öðruvísi nú meðal verkalýðsins og sjómannanna þar, ef svo hefði verið.

Jeg skal þá snúa mjer að hv. þm. Vestm. Hann gerði ákaflega mikið úr því, hve mikið væri um það í Vestmannaeyjum, og víðar, sagði hann, að menn væru ráðnir upp á kaup og hlunnindi. Jeg játaði það í fyrri ræðu minni, að þetta væri svo í Vestmannaeyjum að miklu leyti, og jeg get bætt því við, að það eru margir hissa á því, hvað útgerðarmönnum í Vestmannaeyjum hefir tekist að fá menn fyrir lítið kaup, miðað við það, sem tíðkast annarsstaðar. En þó er það nú svo, að jeg býst við, að Vestmannaeyja-útgerðarmenn sjeu ekki verri en aðrir um kaupgreiðslur, ef menn þurfa t. d. að senda heimilum sínum peninga, svo að jeg býst við, að þeir muldu áreiðanlega fást til að borga vikulega.

Þá vitnaði hv. þm. (JJós) sjerstaklega oft í sveitirnar. En jeg vil benda hv. þm. á, að það er dálítið annað, hvort vistartíminn er 8 vikur, eins og kaupavinnan, eða hvort hann er margir mánuðir. Það er alls ekki sambærilegt. Hvað því viðvíkur, að borgað sje í fríðu, þá er það alls ekki liðið undir lok ennþá.

Annars legg jeg það undir dóm nefndarinnar, hvort hún vill fella niður þetta ákvæði frv. eða ekki, en geri hún það, þá tel jeg miklu atriði slept. En mjer finst engin ástæða til þess, að kippa því úr frv.

Þá kem jeg að samningaákvæði 4. greinar. — Hvort heldur nú hv. þm., að verkalýðnum sje meiri greiði gerður með því að láta þetta ákvæði standa, eða ekki? Jeg verð nú að segja það, að mjer virðast líkur til þess, ef þetta ákvæði er ekki í lögunum, þá sje hægt að semja við ístöðulitla menn, svo að þeir afsali sjer rjettindum sínum, og fara þannig kringum lögin. Því er það, að jeg álít, að þetta ákvæði megi alls ekki falla úr lögunum, svo að mönnum gefist hreint og beint ekki kostur á því, að afsala sjer rjettindum sínum í hendur vinnuveitanda. Jeg býst við, að hv. þm. líti hjer meir á hag atvinnurekenda en verkamanna.

Þá er það hv. þm. N.-Ísf., sem jeg þarf að víkja dálítið að. Hann leggur afarmikið upp úr því, hve ákaflega erfitt sje að vita, hve miklu aflahlutur nemur á hverjum tíma. En hann fer alveg fram hjá þeirri staðreynd, sem jeg benti á, að vestra, t. d. einmitt við Djúp, hafa útgerðarmenn orðið að greiða mönnum iðulega upp í hlut. (JAJ: Það er gert.) Já, það er gert, segir nú hv. þm.; en því þá ekki að lögleiða það, sem skipulagsreglu? Jeg get hjer eftir ekki lagt mikið upp úr þeirri mótbáru hv. þm. gegn frv., að það sje svo erfitt að áætla aflahlut á hverjum tíma. Því að það hafa útgerðarmenn einmitt hlotið að gera, samkvæmt upplýsingum hv. þm. Munurinn er aðeins sá, að ef reglan er lögleidd, eiga menn ekki að þurfa að ganga með grasið í skónum á eftir útgerðarmönnum, til þess að fá smáútborganir, svo konur og börn þurfi ekki að sitja bjargarlaus heima. (JAJ:

Hvað mundi hv. þm. t. d. geta vitað um aflahlut á þilskipi, sem kemur inn mánaðarlega?) Það eru nú, held jeg, orðin fá þilskipin við Ísafjarðardjúp, en mótorbátarnir eru þar því fleiri, og þar er þörfin. Jeg vona, að hv. þm. mótmæli því ekki. (JAJ: Þetta ákvæði á að ná lengra en til Ísafjarðardjúps.) Jeg er að svara hv. þm. og tala því um hans staðhæfingu. Jeg, fyrir mitt leyti, get ekki sjeð neitt hættulegt við þessa reglu, en mjer skildist það vera aðalatriðið hjá hv. þm. (JAJ) gegn frv.

Jeg get gefið nefndinni nánari skýringar á þessu atriði, en jeg verð að segja það, að sjómönnum er alveg eins nauðsynlegt að fá öll ákvæði frv. lögleidd, sem verkamönnum voru trygð með lögunum í fyrra. Þar sem þetta eru líka sömu mennirnir, og meiri hluti atvinnu þeirra byggist ef til vill á sjávarútvegi, því þá ekki að gefa þeim þann rjett, sem Alþingi hefir áður viðurkent rjettmætan?