22.02.1928
Neðri deild: 29. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 413 í C-deild Alþingistíðinda. (1700)

108. mál, einkasala á tóbaki

Ólafur Thors:

Jeg leiði hjá mjer allar almennar athugasemdir um þetta mál, en vil leyfa mjer að leiðrjetta villur hv. flm.

Sú mynd, sem hann dró upp af hinni fjárhagslegu hlið þessa máls, að því er ríkissjóðinn snertir, bæði á einkasöluárunum og síðan, er bæði skökk og villandi. Hann miðaði eingöngu við árið 1925, en auðvitað er það rangt, að miða aðeins við það eina ár. Einkasalan var rekin í fjögur ár, og það rjettasta er því auðvitað að miða við meðaltal þeirra ára, sem hún stóð. Auk þess var árið 1925 alveg sjerstakt í sinni röð að því er tekjur ríkissjóðs snerti yfirleitt.

Tekjur ríkissjóðs af tóbaki, bæði af einkasölu og tolli samtals, voru, þau fjögur ár, sem einkasalan stóð, sem hjer segir:

1922 — 439 þús. kr.

1923 — 634 — —

1924 — 876 — —

1925 — 1108 — —

og voru því meðaltekjur á ári 764 þús. kr.

Síðan einkasalan var afnumin eru nú aðeins liðin tvö ár. Jeg tel mjer nú ekki heimilt að hafa sömu aðferðina og hv. flm., að tilgreina aðeins annað árið, þó að munurinn yrði þá enn meiri, en með því að taka meðaltal af þessum tveim árum og bera það saman við meðaltal hinna fjögra, verður útkoman sú, að hin fjárhagslega afkoma ríkissjóðsins er 251 þús. kr. betri árlega, eftir að einkasalan var afnumin, en meðan hún stóð.

Það voru aðeins þessar staðreyndir, þessar talandi tölur, sem jeg vildi benda hv. þdm. á, áður en gengið er til atkv. um þetta mál, enda þótt jeg geri mjer ekki vonir um, að útkoman verði nema á einn veg.