27.02.1928
Neðri deild: 33. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í C-deild Alþingistíðinda. (1727)

128. mál, fiskiræktarfélög

Flm. (Ingólfur Bjarnarson):

Frv. þetta er samið að tilhlutun nefndar, sem sett var sameiginlega af Búnaðarfjelaginu og Fiskifjelaginu, til þess að annast rannsóknir á veiðivötnum og ám og gefa leiðbeiningar um fiskirækt í þeim. Frv. er samið af ráðunaut nefndarinnar, Pálma Hannessyni, sem auk þess starfar fyrir Búnaðarfjelagið að framkvæmd þessara mála. Það er stílað sem heimildarlög fyrir hjeruð, er liggja saman að veiðiám eða vötnum, um að koma á föstum fjelagsskap til að stuðla að hverskonar fiskirækt hjá sjer og veiðiaukningu. Er auðskilið, að mikil nauðsyn ber til, að slík löggjöf komist á, þar sem um land alt er vaknaður hinn mesti áhugi og skilningur fyrir möguleikum til að margfalda veiði í ám og vötnum, fyrst og fremst með klaki, og svo öðrum þeim aðferðum, sem að gagni geta komið. En til þess að hægt sje að ná því marki, verður ekki hjá komist að setja fastar reglur um ýmislegt, er að veiðiskapnum lýtur. Nú hagar svo misjafnlega til á hinum ýmsu stöðum í landinu, að ekki geta einar og sömu reglur gilt alstaðar. Þess vegna hefir sú leið verið valin að gefa hinum ýmsu hjeruðum heimild til að semja sínar sjerstöku fiskiveiðareglur, ef svo mætti að orði komast. Með fyrirmælum þessa frv. er gert ráð fyrir því, að tryggja sem best, að allir, sem hlut eiga að máli, geti notið jafnrjettis um að taka þátt í þessum samþyktum. Jeg mun ekki fara frekar út í frv. Greinargerð þess er ítarleg, og býst jeg við, að hv. þdm. hafi kynt sjer hana. Þess utan er það mikil trygging, að frv. er samið af þeim mönnum, sem hafa mikinn áhuga fyrir þessu máli og viðtæka þekkingu. það má því ganga út frá því, að frv. sje vel úr garði gert, þó að ef til vill megi deila um ýms smærri fyrirkomulagsatriði.

Jeg mun ekki fara fleiri orðum um þetta mál, en vænti þess, að því verði að lokinni umr. vísað til 2. umr. og landbn.