21.03.1928
Neðri deild: 53. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í C-deild Alþingistíðinda. (1737)

128. mál, fiskiræktarfélög

Frsm, (Jörundur Brynjólfsson):

* Hv. þm. Mýr. hefir flutt hjer brtt. við þetta frv. Það er nú svo, að við höfum að vísu talað um þetta í landbn., en ekki formlega, því það láðist að taka þetta fyrir á fundi, og get jeg því ekki sagt fyrir hönd nefndarinnar, hvernig hún liti á þetta mál. Jeg get aðeins sagt fyrir mína hönd og ef til vill meiri hl. nefndarinnar, að við höfum ekkert á móti þessum brtt.

Það er rjett, sem hv. þm. Mýr. drap á, að ef þetta frv. verður samþ. eins og það er, kemur það í bága við núgildandi lög, og getur því ekki öðlast staðfestingu. Jeg get fallist á, að rjett sje, að lögin hafi hvor sitt afmarkaða svið, en gripi ekki hvor inn í önnur, eins og gert er ráð fyrir í frv. eins og var upphaflega. Laxveiðalögunum er þar að auki í mörgu ábótavant, og væri því þörf á að endurskoðun færi fram á þeim og frekar væri ákveðið um tilhögun veiðanna. En þó þörf sje á frekari friðun, þá bætir svona lagasetning, eins og hjer er á ferðinni, ekkert úr, og því rjett að fella ýms atriði í burtu. Mun jeg því greiða atkv. með því. Viðvíkjandi 13. gr. er það að segja, að hún má gjarnan breytast, og er því vel farið, að þessi brtt. hefir komið fram við hana.

Hefi jeg svo ekki fleira að segja, en vona, að hv. þdm. geti orðið ásáttir um að samþ. þessar brtt.

*Ræðuhandr. óyfirfarið af þm.